Nanna Rögnvaldardóttir hefur borðað nægju sína af viðbættum sykri fyrir lífstíð og sjálfsagt stuðlað að aukinni sykurneyslu með freistandi og vinsælum uppskriftum að kökum og ábætisréttum í hinum fjölmörgu matreiðslubókum sínum. Nú hefur hún snúið við blaðinu, er hætt sykurneyslu og hefur hér tekið saman girnilegar uppskriftir að ýmsu sætmeti – ÁN SYKURS.
Í þessari bók má finna uppskriftir að fjölbreyttu góðgæti þar sem hvorki er notaður unninn sykur, síróp, hunang eða annað slíkt né tilbúin sætuefni, heldur einungis ávextir. Í þeim er vissulega ávaxtasykur en einnig ýmis holl næringarefni og ljúffeng bragðefni.
BANANA-KOTASÆLULUMMUR
Vel þroskaðir bananar, sem farnir eru að sortna, gera þessar lummur sætar og góðar og það er í rauninni ekki þörf á neinu með þeim. Mér finnst samt gott að strá muldum pekan- eða valhnetum yfir og hafa e.t.v. sýrðan rjóma eða meiri kotasælu með, eða jafnvel ber. – Ég hef líka prófað að nota haframjöl (hafragrjón fínmöluð í matvinnsluvél) í stað heilhveitis, svo og blöndu af haframjöli og möndlumjöli; líklega mætti nota eintómt möndlumjöl líka.
Maukaðu bananana í matvinnsluvél eða stappaðu þá með gaffli og blandaðu kotasælunni saman við. Hrærðu svo bræddu smjöri, eggi og vanillu saman við og síðan lyftidufti, salti og eins miklu heilhveiti og þarf til að soppan verði hæfilega þykk.Láttu hana bíða smástund.
Hitaðu svolitla olíu á pönnu og settu soppuna á hana með matskeið eða lítilli ausu. Steiktu lummurnar við meðalhita í um 2 mínútur, eða þar til þær hafa tekið fallegan lit að neðan. Snúðu þeim þá og steiktu þær í 1−2 mínútur á hinni hliðinni.
Um 12 lummur
2 bananar, vel þroskaðir
200 ml kotasæla
50 g smjör, brætt, og meira til
steikingar (einnig má nota olíu)
1 egg
½ tsk vanilluessens
1 tsk lyftiduft
¼ tsk salt
100 g heilhveiti, eða eftir þörfum