Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ólögmætar innheimtuaðgerðir Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar

$
0
0

Klara Egilson blaðamaður er búsett í Noregi og skrifaði eftirfarandi færslu á Facebooksíðu sína í dag þar sem hún segir farir sínar ekki sléttar af innheimtuaðgerðum Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Við deilum færslunni hér með góðfúslegu leyfi Klöru:

„Í lok apríl barst mér bréf frá Momentum, greiðslu- og innheimtuþjónustu í Reykjavík. Bréfleiðis já, í póstkassa minn hér í Noregi. Í umslaginu voru þrír reikningar vegna ótilgreindrar skuldar við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Reikningarnir – sem báru allir sitt hvora upphæðina – voru vegna þjónustu sem Velferðarsvið segir mig hafa þegið í desember 2011, janúar 2012 og febrúar 2012.

Nú fluttist ég erlendis í febrúar 2012 og rekur ekki minni til þess að hafa þegið félagslega heimaþjónustu á þessu tímaskeiði. Furðu lostin hringdi ég í Momentum og ræddi þar við ágætan innheimtufulltrúa – sem sagði mér sem satt var, að Velferðarsvið hefði sent kröfuna til innheimtu – en að engra nánari skýringa væri að vænta af hálfu Momentum. Skuldin væri hins vegar til – framreiknuð með vöxtum – og að upphæðina bæri mér að greiða.

GJALDDAGI – 15.12.2011:
Höfuðstóll 1500 // Annar kostn: // 150 // Dráttarv: 740 // Ítrekun: 382
SAMTALS: – 2772 ISK
GJALDDAGI – 15.01.2012:
Höfuðstóll 4000 // Annar kostn: // 150 // Dráttarv: 1917 // Ítrekun: 382
SAMTALS: – 6449 ISK
GJALDDAGI – 15.02.2012:
Höfuðstóll 3000 // Annar kostn: // 150 // Dráttarv: 1398 // Ítrekun: 382
SAMTALS: – 4928 ISK

*Verði innheimtuaðvörun þessari ekki sinnt bætist aukið álag á kröfuna, kr. 382, sem ekki verður komist hjá að greiða. — Þetta stóð við hverja og eina kröfu.
Sumsé, hefði ég ekki borgað samstundis – að viðbættu álagi á hverja og eina kröfu – hefði mér borið, í dag – að greiða samtals:

15.295 ISK inn á reikning Momentum, að kröfu Velferðarsviðs Reykjavíkur.

Ég hringdi nú í símanúmer Reykjavíkurborgar og óskaði skýringa á þessum þremur reikningum – sem mér berast skyndilega – árið 2015 – til Noregs. Hjá Reykjavíkurborg fengust hins vegar þær skýringar að þar sem skuldin væri orðin ansi gömul – hefði þjónustuver ekki lengur aðgang að upplýsingum sem varða skuldina.

Af hverju átti ég þá að greiða 15.295 ISK inn á reikning MOMENTUM?
Fyrir hvaða þjónustu væri skuldin?

Mér var vísað áfram, á fjármáladeild Velferðarsviðs – ákveðin í að leysa gátuna, tók ég nú á það ráð að hringja aftur og fóru leikar svo að eftir fjögur stutt símaviðtöl við ágæta starfsmenn Reykjavíkurborgar – mikið japl, jaml og fuður fékk ég að lokum samband við starfsmann sem sagðist ætla að „senda fyrirspurn vegna málsins“ – en ekki þó fyrr en konan hafði sagt mér að „skuldin gæti verið tilkomin vegna heimahjúkrunar, aksturs, heimilisþrifa og svo allt þar á milli“ en því miður gæti hún þó ekki sagt mér um hvers kyns þjónustu væri að ræða. Það væri of langt liðið.

„Gæti verið?“ – hváði ég. „Já, en eru það eðlileg vinnubrögð af hálfu Velferðarsviðs að áætla þjónustu og senda brottfluttum Íslendingum reikning erlendis til gegnum innheimtufyrirtæki, rúmum þremur árum eftir brottflutning? Án þess að skilgreina eðli þjónustunnar frekar? Bara svona … já já, þetta gæti nú verið af því að þú hefur þurft á hjálp að halda einhvern tímann … hér er reikningur.“

Nú var heildarupphæðin ekki há – því sem nemur rúmum 15.000 íslenskum krónum, en gott fólk – ef Velferðarsvið getur sent reikninga til Íslendinga sem búsettir eru erlendis – án nánari skilgreininga og ef við, neytendur, greiðum vafningalaust og án nokkurra eftirmála – hver er þá trygging okkar fyrir því að fleiri reikningar berist okkur ekki – fyrir „óskilgreinda þjónustu, sem liðið er svo langt frá að ekki er hægt að skilgreina lengur?“

HVER ER MÍN TRYGGING fyrir því að ég sæti réttmætum innheimtuaðgerðum, ef engin skýring finnst að baki kröfunni? Ef ég veit ekki hvers vegna skuldin er tilkomin? Því ætti ég að greiða reikning sem enginn hefur tök á að rökstyðja?

Ég fékk svör við spurningu minni eftir fáein símtöl til Momentum og talsverða þrákelni í samskiptum við Reykjavíkurborg. Í ljós kom að lokum að reikningurinn var sendur út sökum mistaka, að Momentum sendi út (fyrir misgáning) ólögmæta innheimtuviðförun vegna skuldar sem ekki var til. Fyrir hönd Velferðarsviðs.

Lexía: Berist mér innheimtubréf frá íslenskum innheimtufyrirtækjum aftur til Noregs, mun ég ekki reiða upp veskið fyrr en ég hef gengið úr skugga um að ég skuldi sannarlega umrædda upphæð og að skuldin sé tilkomin vegna þjónustu sem ég þáði. Það er rétt að skömmu eftir fæðingu sonar míns þáði ég heimilishjálp í örfá skipti – en ég gerði upp við Reykjavíkurborg fyrir rúmum fjórum árum síðan og því var Velferðarsviði ekki stætt á að senda mér innheimtukröfu gegnum Momentum í lok apríl 2015. Á meðfylgjandi skjáskoti má sjá lokasvar frá heimaþjónustu Reykjavíkurborgar – en af tilliti við viðkomandi starfsmann hef ég tekið persónupplýsingar út.

Ég skulda því ekki krónu – þessi tilbúna skuld sem MOMENTUM fékk til innheimtu verður umsvifalaust felld niður og umræddur reikningur verður bakfærður í kerfinu – þar sem aldrei var í raun stofnað til nokkurrar skuldar. SEM BETUR FER BORGAÐI ÊG EKKI!

VERUM VAKANDI gagnvart ólögmætum innheimtuaðgerðum!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283