Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Freyðandi sumarfjör í garðinum!

$
0
0

Nú þegar sumarið er alveg að skella á er ekki úr vegi að fjalla aðeins um nokkur skemmtileg freyðivín sem henta vel í hinar ýmsu uppákomur og síst í garðpartíin. Santero er stærsti framleiðandi freyðivína á Ítalíu og vínin frá þeim eru þau lang söluhæstu í vínbúðunum á Íslandi.

santero

Það skemmtilega við þessi freyðivín er að þau eru til í mörgum mismunandi gerðum og því hægt að velja sér rétta freyðivínið við flest tækifæri. Hitt, sem er svo ekki síður skemmtilegt er verðið því það er afar hagstætt verð á þessum freyðivínum. Það er ekki alltaf hægt að fá sér flösku af góðu freyðivíni á innan við kr. 1.200 ! Hér ætlum við að fjalla um þessi vín.

santero_pesca

 

 

 

Santero Moscato kr. 1.136

Við Íslendingar höfum lengi átt í gjöfulu ástarsambandi við örlítið sæt freyðivín frá Asti. Asti er svæði í Piemonte-héraðinu í Norður-Ítalíu við rætur Alpanna. Þetta eru iðulega vín sem gerð eru úr hinni ilmríku þrúgu Moscato. Hér er vín sem er einmitt úr þessari skemmtilegu þrúgu, sem er elsta þekkta þrúguafbrigðið frá þessu fallega svæði. Þessi vín eru iðulega frekar sæt og með lágt áfengisinnihald og hér er engin undantekning á því. Þetta er vín sem er ljósstrágult með dæmigerða angan af Mocato-þrúgum, ávexti og appelsínublóm. Það er sætt í munni og arómatískt og gott jafnvægi. Það hentar afar vel með kökum og hvers konar eftirréttum og ávöxtum
Berið fram við 6–8 °C.

Santero Fragola

Santero Moscato Fragola kr. 1.136

Þetta vín er að mörgu leyti óvenjulegt en um leið skemmtilegt. Það er löng hefð fyrir því á Ítalíu að gera vín sem heita Fragola, þau eru yfirleitt gerð úr þrúgum sem henta alla jafna illa til víngerðar, af afbrigðinu vitis Lambrusca (Flestar þrúgugerðir sem notaðar eru í víngerð eru af afbrigðinu Vitis Vinifera), þrúgur sem eru mjög bragðmiklar og vaxa hratt. Þetta vín er gert úr þess konar þrúgum sem heita einmitt Uva Fragola (ísl: Jarðaberjaþrúgan) og vínið er gerjað upp í lagt áfengisinnihald og úr verður frekar sætt vín sem síðan er bragðbætt með náttúrulegum villijarðarberjasafa svo úr verður þessi frábærlega frískandi drykkur.
Í nefinu er ferskur ilmur af jarðarberjum og bragðið er jafn sprellfjörugt og svalandi. Frábært vín með ávöxtum, eftirréttum og góðum vinum.

Santero prosecco

 

 

Santero Prosecco Craze kr. 1.876

Prosecco er þurrt freyðivín frá Ítalíu sem er venjulega gert úr þrúgum sem heita Glera, en hafa líka verið kallaðar Prosecco. Þó nafnið sé dregið af bænum Prosecco nálægt Trieste, hvaðan þrúgurnar eru upprunnar, er DOC Prosecco framleitt bæði í Veneto og Friuli og í hlíðunum í kringum Treviso.
Þetta prosecco er það langvinsælasta í vínbúðunum. Það er fallega strágult að lit með fínlegum „bubblum“. Í nefi býður það upp á fínlegan blómailm, sem er eitt af karaktereinkennum Prosecco, og ilm af ferskum ávexti. Bragðið er ávaxtaríkt og aðgengilegt með skemmtilegum ávaxtanótum. Frábært eitt og sér eða sem fordrykkur eða með nánast hvaða máltíð sem er. Berið fram við 5–6°C.

Fragolino Twist P1804
Santero Fragolino kr. 1.136

Eins og hin freyðivínin þá er þessi flaska afar glæsileg á að líta og innihaldið svíkur engan. Þetta er nýjasta afurðin frá Santero í Vínbúðunum og ætti að smellpassa í allar uppákomur í sumar hvort sem um er að ræða starfsmannagleði, garðpartí eða annað. Þetta er sætur og freyðandi jarðarberjakokteill sem ætti að geta sparað mörgum sporin þegar bjóða á upp á kokteil.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283