Fyrsti dagur Þorra er nefndur bóndadagur en sá síðasti þorraþræll. Bóndadag ber upp á föstudaginn, 24.janúar í ár og hefð hefur skapast fyrir því að konur færi eiginmönnum sínum blóm á þessum degi. Það er í sjálfu sér gaman að gefa og að fá blóm en mun kostulegra væri ef haldið væri í eldri siði. Það væri tilbreyting ef eiginmenn á Íslandi myndu taka upp það háttalag á bóndadaginn sem sagt er frá í þjóðsögum Jóns Árnasonar:
… með því að þeir áttu að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gekk í garð. Áttu þeir aða fara ofan og á skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra skálmina og láta hina lafa og draga hana á eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa. Síðan áttu þeir að halda öðrum bændum úr byggðarlaginu veislu fyrsta þorradag; þetta er „að fagna þorra“
Þar hafiði það strákar!