Sveinn Arnarsson ritstjóri Akureyrarvikublaðsins á vefnum skrifar grein þann 21. janúar 2013, sem ber titilinn: “Sunnudagsmorgunn og RÚV: Sjónvarp allra landsmanna? Í greininni ræðir Sveinn vítt og breitt um skyldur Ríkisútvarpsins og segir meðal annars:
“Rikisútvarpið er ein stofnun sem við öll, ríkið, rekum og eigum. Þessi stofnun býr þess vegna yfir ákveðnum skyldum sem það þarf að sinna. Hún þarf að nást alls staðar á landinu, hún þarf að sinna öllum aldurshópum, hún þarf að passa upp á kynjahlutföllin og já… hún þarf líka að leyfa röddum allra hópa að heyrast, Þessar skyldur eru settar á stofnunina sökum þess að við öll eigum hana. RÚV er sérstök, okkur þykir öllum vænt um hana, því við eigum hana öll saman.”
Sveinn rannsakar síðan í greininni Þátt Gísla Marteins á sunnudagsmorgnum sérstaklega og segir :
“Í sjónvarpinu er eiginlega aðeins einn þáttur sem sinnir þjóðfélagi og pólitík. Hann heitir „Sunnudagsmorgunn’’ í umsjón Gísla Marteins Baldurssonar. Hann hefur gefið það út sjálfur að hann ætli að passa vel upp á kynjahlutföll og að engum pólitískum skoðunum sé hyglt.”
Sveinn skoðar vandlega hlutföll gesta eftir kyni og búsetu og kemst að því að af öllum viðmælendum Gísla, sem eru 110 talsins eru kynjahlutföll þau að 64 karlmenn hafa verið gestir og 46 konur, sumsé harla gott þótt margir vilji eflaust jafnari kynjaskiptingu. Niðurstöður Sveins þegar viðmælendur eru skoðaðir með hliðsjón af búsetu eru hinsvegar sláandi og sýna með óyggjandi hætti að á landsbyggðina er verulega hallað.
“Hvað varðar skiptingu viðmælenda eftir búsetu er myndin einföld. Af 110 einstaklingum sem hafa verið í þættinum hjá Gísla Marteini, eru 105 íbúar höfuðborgarsvæðsins, en fimm utan þess. 95.5% á móti 4.5%. Tveir af þessum þremur búa erlendis. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Baltasar Kormákur. Baltasar er þó mestmegnis í Skagafirðinum þegar hann er heima.”
Gísli Marteinn sendi Sveini bréf eftir birtingu þessarar greinar og bendir á að þessar rannsóknarniðurstöður séu ekki alls kostar réttar því að tveir gesta hans hefðu ekki ratað í réttan flokk hjá Sveini. Eftir stendur þrátt fyrir ábendingar Gísla að hlutfall gesta er 105 frá höfuðborgarsvæðinu á móti 5 gestum sem búa utan þess.
Twittersamskipti Gísla og Sveins voru með skemmtilegasta móti vegna þessara skrifa og gaman að birta þau hér:
Sveinn Arnarsson @Sveinn_A
Ákvað að skrifa niður örfá orð um Rúv og hlutverk þess! Gagnrýni á rétt á sér ef hún er hófstillt og sanngjörn: http://www.akureyrivikublad.is/akvbl/frettir/2014/01/21/sunnudagsmorgunn-og-ruv-sjonvarp-allra-landsmanna/ …
Gísli Marteinn @gislimarteinn
@Sveinn_A Er ss bara einn af eftirtöldum landsbyggðarmaður:Sigurður Ingi Flúðir, Elliði Vignis Eyjar, Ragnh Elín KEF, Halldór Halld. Ísafj.
Sveinn Arnarsson @Sveinn_A
@gislimarteinn Góður punktur, gleymdi SIJ!!! Halldór er RVK. KEF er ekki landsbyggð. Samt réttmæt rýni, finnst þér ekki
Gísli Marteinn @gislimarteinn
@Sveinn_A Ég fagna því bara að landsbyggðinni finnist KEF vera höfuðborgarsvæðið. Verður auðveldara að finna flugvallarstæði á hbsvæðinu.:-)
@Sveinn_A Annars alveg rétt. 80% þjóðarinnar býr í klukkutíma fjarlægð frá útvarpshúsinu. Ég mætti seilast meira í hin 20%.
@Sveinn_A Ef Halldór Halldórsson er Reykvíkingur, er þá Sigmundur Davíð ekki landsbyggðarmaður?
Sveinn Arnarsson @Sveinn_A
@gislimarteinn góður punktur. Getum endalaust rifist um einstaka menn. þetta er samt trendið Ánægður að þú svarar málefnalega til baka. TAKK