Bananabrauð er alltaf vinsælt á mínu heimili og hér er holl og fljótleg uppskrift af ljúffengu bananabrauði fyrir sumarið.
Bananabrauð Unnar:
• 3 heilir bananar
• 2 egg
• 1 dl haframjöl
• 2 dl gróft spelt hveiti
• 1 dl hrásykur
• 1 tsk lyftiduft
• 3 tsk kanill
Setjið allt hráefnið saman í skál og hrærið.
Bakist við 180 gráður í 35 mínútur.
Mjög gott að bera bananabrauðið fram með hnetusmjöri, eplum og jarðaberjum.
Njótið!