Fjölmennasti hópur atvinnurekenda á Íslandi í dag eru einyrkjar, sem selja vörur eða þjónustu á sinni eigin kennitölu. Mín reynsla af því að vinna með þessum hópi er sú að einyrkjar upplifa skattaumhverfið sem algjöran frumskóg og eyða oft óþarfa tíma í að reyna að feta sig í gegnum það um leið og þeir þjást af kvíða gagnvart næstu skilum eða næsta bréfi frá Skattmann.
Með því að fylgja örfáum þumalputtareglum er þó lítið mál að snúa þessu við og öðlast hugarró gagnvart rekstrinum. Fara að njóta og uppskera í stað þess að vera með kvíðahnút í maganum yfir næsta óskiljanlega bréfinu sem kemur inn um lúguna frá Skattmann!
Ef þér finnst þetta hljóma vel skaltu spenna beltin og tileinka þér nokkrar reglur sem munu gera þig útúr zen-aða á nótæm…
1. Aðskildu „rekstrarsjálfið“ frá þér sjálfri!
Ok. Héðan í frá eruð þið tvær. Þú ert „þú“ og svo ertu „rekstrar-þú“. Önnur er kona, mamma, vinkona o.s.frv. Hin „þú“ ert framkvæmdastjóri eigin reksturs. Rekstrar-þú þarft að redda þér eftirfarandi:
Sér bankareikning fyrir reksturinn – þangað sem tekjurnar fara inn á og gjöldin fara út af.
Sér debetkort á nýja bankareikninginn – sem rekstrar-þú notar þegar þú verslar inn hluti/þjónustu fyrir reksturinn.
Möppu fyrir bókhaldsgögn – þar sem rekstrar-þú setur allar nótur sem þú verslar inn fyrir reksturinn. Gerðu möppuna að vinkonu þinni og ekki hika við að kaupa hana í sexí lit og strá á hana glimmeri. Það má.
2. Búðu til fast „fjármáladate“ með sjálfri þér!
Rekstrar-þú átt héðan af vikulegt/mánaðalegt date með sjálfri þér – þar sem þú skoðar rekstrar-bankayfirlitið og sölureikningana sem þú hefur gefið út á tímabilinu og sérð til þess að þú hafir sett alla reikninga/nótur í fínu bókhaldsmöppuna þína. Þannig áttar þú þig fljótt á því hvort það vanti einhverjar nótur inn í möppuna – af því þú ert nátturulega með allar bankahreyfingarnar fyrir framan þig á nýja rekstrar-bankareikningnum þínum!
Ekki gleyma að senda þér fundarboð og gera ráð fyrir fjármáladate-inu í kalendarinu. Og nei. Ég er ekki að djóka.
3. Dagsetningar eru lykilatriði!
Kynntu þér skattadagatalið inn á www.rsk.is og skelltu þeim inn í kalendarið þitt. Þar koma fram allar helstu dagsetningar eins og skil á virðisauka og tekjuskatti. Það er dýrt spaug að klikka á þessum dagsetningum. Mjög dýrt.
4. Skattur er ekki bara skattur!
Mín reynsla er sú að einyrkjar rugla gjarnan saman virðisauka- og tekjuskatti. Ekki klikka á þessu…hér eru nokkur lykilatriði hvað þetta varðar:
Virðisauki er skattur sem leggst ofan á vörur/þjónustu sem þú ert að selja og þér ber að skila til Skattmann. Þú mátt rukka 1 mkr. á 12 mánaða tímabili áður en þú byrjar að innheimta þennan skatt en það er valkvætt og alltaf matsatriði hvort það þjóni einhverjum tilgangi.
Þú þarft hinsvegar að borga tekjuskatt (kölluð staðgreiðsla eða „reiknað endugjald“ hjá Skattmann) af ÖLLUM þeim reikningum sem þú gefur út (að frádregnum virðisauka). Þar gildir ekki þessi 1 mkr. regla sem gildir um virðisaukann. Þetta þýðir að þú þarft að greiða Skattmann tekjuskatt af laununum þínum mánaðarlega.
5. Leggðu virðisaukaskattinn til hliðar!
Líttu ALDREI á virðisaukann sem þú innheimtir sem þínar tekjur. Þetta er bara millifærsla frá kaupandanum til Skattmann. Leggðu virðisaukann til hliðar viku-/mánaðarlega (eftir umfangi rekstursins). Þetta kemur í veg fyrir kvíðahnútinn þegar vsk-skilin nálgast. Svo þegar þú ert búin að draga virðisaukann af því sem þú keyptir inn til rekstursins frá þessari upphæð – áttu væntanlega afgang. Sem er einstaklega zen-aukandi.
6. Láttu fagmann sjá um launavinnslur!
Launavinnslur (reiknað endurgjald) eru tiltölulega ódýrar í úthýsingu en skipta þig lykilatriði. Það kostar þig um 3-4000 kr. á mánuði að fá fagmann til að útbúa launaseðla, skila upplýsingum til Skattmann og lífeyrssjóða en sparar þér ófá grá hár, ógnvekjanlegar áætlanir frá Skattmanni, æðahnúta og magaverki. Þetta atriði er no-brainer.
7. Mundu að Skattmann vinnur fyrir þig!
Þú getur sparað þér fullt af tíma og peningum með því að hringja í Skattmann (sem gengur undir nafninu „Ríkisskattstjóri“ á www.ja.is) í stað þess að eyða mörgum klukkustundum í að þræða þig gegnum www.rsk.is vefinn. Þar starfar heil glás af sérfræðingum í skattamálum sem eru boðnir og búnir að aðstoða einmitt þig við að uppfylla þínar skyldur. Ekki hika við að taka upp tólið!
8. Ekki taka „Strútinn“ á þetta!
Hvað sem þú gerir – ekki stinga höfðinu í sandinn! Opnaðu gluggapóstinn og dílaðu við hann. Skattmann gleymir engu og er fljótur að senda þér áætlanir, rukkanir og hótanir. Sem hann meinar.
9. Stundum borgar það sig að úthýsa!
Þó að úthýsing þýði ekki að þú getir verið laus við allt umstang – þá borgar það sig stundum að ætla ekki að gera allt sjálf. Þú verður alltaf að eyða einhverjum tíma í fjármálin sjálf en stundum borgar það sig að úthýsa hluta af þessu. Það geta ekki allir verið góðir í öllu og eins getur það reynst rekstrinum þínum dýrmætt að missa „rekstar-þig“ tímunum saman út úr framleiðslunni/þjónustunni sjálfri. Pantaðu tíma hjá ráðgjafa/bókara sem þú hefur góða afspurn af og fáðu tilboð í þjónustuna! Hver veit nema það borgi sig?
10. Njóttu þess að öðlast hugarró!
Um leið og þú hefur tileinkað þér þessar þumalputtareglur er kominn tími til að njóta þess að vera laus við kvíðahnútinn og einbeita þér að aðalatriðinu…Að sigra heiminn og njóta. Like a boss.
Áfram rekstrar-þú!