Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Af hugmyndum eignalausa ráðherrans

$
0
0

Ólíkar eru athafnir ráðherranna þótt báðar séu þær heldur ógeðslegar.

Sjávarútvegsráðherrann réðist með oforsi á starfsmenn fiskistofu í byrjun síns starfsferils og tilkynnti starfsfólki að stofnunin yrði flutt til Akureyrar innan árs með manni og mús.

Starfsfólk tók upp varnir enda engin lög sem heimila þessi fantalegu vinnubrögð sem líktust einna helst vinnubrögðum einræðisherra í einhverju einræðisríkinu.

Nú hefur þessi ráðherra gefist upp að sinni en vinur hans forsætisráðherra er að reyna að fá samþykkt lagafrumvarp sem á að gefa ráðherrum frelsi til að færa allar þær stofnanir sem hann heyra hvert á land sem hann vill. Almennt eru íslendingar hlynntir því að opinberar stofnanir dreifist um landið en ekki að slíkt sé gert í einhverju gerræðiskasti ráðherra hverju sinni.

Nú kemur skólamálaráðherrann fram sviðið og skýrir frá nýjum valdsboðum af hans hálfu.

Hann hefur gefist á því geræði sínu að ætla að leggja niður fjölda framhaldsskóla á Norðurlandi og að sameina þá í einn skóla á Akureyri. Þegar hefur hann hrakist frá þessari ætlun sinni. Nýlega var lofað að lögum um að engir nemendur gætu sótt framhaldsskóla á bóknámssviði eftir 25 ára aldur yrðu afnumin. Það var ASÍ sem tróð þessu ofan í kok á ráðherranum.

Nýjasta geræðishugmynd ráðherrans gengur út á það, að allt framhaldsnám í tónlistarsviðinu verði aflagt á landsbyggðinni og fært til Reykjavíkur. Þ.e.a.s. hann vill færa alla slíkar stofnanir til höfuðborgarinnar svo kostnaðurinn færist til nemenda og foreldra þeirra.

Þetta á ekki að koma neinum á óvart, en fyrir nokkrum árum byrjaðu ráðamenn sjálfstæðisflokksins að einkavæða allt iðnnám. Frá þessum fasísku hugmyndum eignalausa ráðherrans segir bæði á forsíðu Fréttablaðsins, á Hringbraut og hjá RÚV.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283