Kostuð kynning.
Þvagleki er algengt vandamál sem getur verið mjög íþyngjandi í daglegu lífi. Á Íslandi á einn af hverjum sex við þetta vandamál að stríða og er þar um að ræða fólk á öllum aldri. Sumir eiga erfitt með að fara í ræktina vegna ótta við þvaglekann og enn aðrir eiga á hættu að missa stjórn á þvaglátum við það að hósta eða jafnvel við að hlæja.
Þar sem þvagleki hefur verið álitinn feimnismál verður vandamálið stundum stærra en efni standa til. En ef ekkert er að gert getur þvagleki skert lífsgæði verulega og haft í för með sér önnur vandamál og í sumum tilvikum er hætta á félagslegri einangrun. Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða hjálparvörur við þvagleka, eins og bindi og bleiur. Rekstrarland býður upp á þvaglekavörur sem samþykktar eru af Sjúkratryggingum Íslands.
„Við erum með hágæðavörur frá danska framleiðandanum Abena sem hefur eitt mesta vöruúrval af þvaglekabindum og -bleium í heiminum í dag,“ segir Jóhanna Runólfsdóttir, sölu- og þjónusturáðgjafi hjá Rekstrarlandi. Jóhanna er sjúkraliði og hefur áralanga reynslu af fræðslu um notkun þvaglekavara og mikla þekkingu sem nýtist þegar velja á réttar vörur.
„Vörurnar eru til í ýmsum stærðum og gerðum með mismikilli rakadrægni þannig að allir ættu að finna vöru sem hentar. Þetta eru umhverfisvænar vörur, mjúkar og þægilegar.“
Fagleg og persónuleg þjónusta
„Við leggjum sérstaka áherslu á persónulega og faglega þjónustu við notendur þessara vara og aðstandendur þeirra. Við erum með góða aðstöðu í sérstöku viðtalsherbergi þar sem við aðstoðum notendur við að finna þá gerð og stærð sem hentar. Þar erum við með sýnishorn af hjálpargögnunum, góða upplýsingabæklinga og fyrst og fremst næði til að ræða hvað hentar hverju tilfelli fyrir sig. Svo sendum við líka sýnishorn heim til þeirra sem það vilja.“
Umhverfisvænar vörur frá Abena
Vörurnar í Rekstrarlandi eru frá danska framleiðandanum Abena sem býður upp á gott úrval af umhverfisvænum vörum. „Við erum mjög ánægð með að geta boðið upp á vörur frá Abena en fyrirtækið býður einstaklingsbundnar lausnir, breiða, sérstæða vörulínu og sérhæfðar og góðar lausnir. Það skiptir okkur líka máli að þar er lögð sérstök áhersla á umhverfið þar sem Abena er hluti af UN Global Compact-átakinu, fyrirtækið er PEFC-vottað og þvaglekavörurnar þeirra eru FSC- og svansmerktar,“ segir Jóhanna sem tekur á móti viðskiptavinum í verslun Rekstrarlands í Mörkinni 4. Skírteinishafar hjá Sjúkratryggingum Íslands geta nú leitað beint til verslunarinnar til að þess að fá þvaglekavörurnar afgreiddar og sendar heim.