Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Óútskýrður ærdauði víða um land

$
0
0

Tilkynning frá landssamtökum sauðfjárbænda:

„Að undanförnu hefur borið á því að óvenju margar ær hafa drepist á nokkrum svæðum á landinu. Á sumum bæjum eru þetta þónokkur afföll. Tíðarfar, vanhöld eða léleg fóðrun virðist ekki vera fullnægjandi skýring.

Landssamtök sauðfjárbænda telja ástæðu til að skoða málið nánar og reyna að kortleggja umfangið. Á næstu dögum verður byrjað að taka blóðsýni úr veikum ám og senda utan til greiningar.

Landssamtökin hvetja bændur sem fyrir þessu hafa orðið að hafa samband. Hægt er að senda Svavari Halldórssyni framkvæmdastjóra tölvupóst á netfangið svavar@bondi.is. Þar væri gott að tíunda allt sem óvenjulegt er í ár, heygæði, fóðurbætisgjöf, lýsisgjöf, notkun steinefnastampa, einkenni veikra áa, óvanaleg einkenni lamba, afföll o.s.frv. Einnig væri gott að fá niðurstöðu heysýna hjá þeim sem að luma á slíku.

Gott væri að heyra frá bændum sem fyrst. Sérstaklega væri gott að heyra í þeim sem eru með lélegar ær sem ekki hafa enn farið út, til að taka úr þeim blóðsýni.

Farið verður með hvert og eitt erindi sem trúnaðarmál í samvinnu við dýralækni“

Bóndi á Jökuldal telur ekki ólíklegt að rekja megi óútskýrðan sauðfjárdauða að undanförnu til mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni segir í frétt RUV.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trending Articles