Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lögreglan ætlar að njósna um þig á Secret Solstice –Þekktu rétt þinn!

Secret Solstice hátíðin byrjar í dag og undirrituð verður á staðnum í fríðu föruneyti Eddu Karólínu Ævarsdóttur ljósmyndara að fylgjast með herlegheitunum. Líkt og í fyrra bjóða hátíðarhaldarar upp á sannkallaða tónlistarveislu í Laugardalnum en meðal hápunkta hátíðarinnar verða Wu-Tang Klan, Hercules and Love Affair, Moodyman og The Wailers. Ekki er við öðru að búast en að þetta verði hin skemmtilegasta hátíð, allavega ef dæma má frá velukkuðum hátíðarhöldum í fyrra. Þá er einnig ánægjulegt að segja frá því að hátíðarhaldarar virðast hafa tekið til sín gagnrýni frá árinu í fyrra hvað varðar aðgengi að vatni, en hátíðargestir höfðu hvergi aðgengi að rennandi vatni í fyrra. Úr þessu hefur nú verið bætt og nú má finna vatnskrana víðsvegar á svæðinu sem er einstaklega mikilvægt til þess að tryggja heilsu og öryggi hátíðargesta.

Lögreglan virðist þó ekki hafa tekið til sín þá gagnrýni sem beindist að starfsháttum hennar á hátíðinni í fyrra. Samkvæmt Gunnari Hilmarssyni, aðalvarðstjóra stöðvar eitt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þá: „hefur lagaumhverfið ekkert breyst þannig að við sýnum sölumönnum dauðans enga þolinmæði.“ 

Í samtali við Kvennablaðið í fyrra kom fram af hálfu hátíðarhaldara að þeir hygðust biðja lögreglu um að láta minna á sér bera þetta árið þar sem síðasta hátíð fór einstaklega vel fram, engin ofbeldisbrot né kynferðisbrot voru tilkynnt og lögreglan hafði mestmegnis neysluskammta upp úr krafsinu á víðtækum leitaraðgerðum sínum. Gunnar sagði lögregluna þó ekki ætla að hafa minni viðbúnað á svæðinu en í fyrra og hefur lögreglan því ekki tekið beiðni hátíðarhaldara til greina.

Lögreglan mun því vera með hunda fyrir utan hátíðarsvæðið og óeinkennisklædda sem og einkennisklædda lögreglumenn inni á svæðinu líkt og í fyrra. Gunnar vildi ekki gefa upp hversu margir lögreglumenn yrðu á svæðinu en fjölmennur hópur óeinkennisklæddra lögreglumanna voru á svæðinu í fyrra og leituðu -að því er virtist af handahófi – í vösum hátíðargesta eins og Kvennablaðið fjallaði ítarlega um á sínum tíma.
Undirrituð vil nýta tækifærið til þess að minna gesti hátíðarinnar á rétt sinn til friðhelgis einkalífs, að lögreglan megi ekki leita á þeim án þess að hafa rökstuddan grun um refsiverða háttsemi og þá einungis með fullu og óþvinguðu samþykki aðilans sem um ræðir, ellegar með dómsúrskurði. Af gefnu tilefni má lögreglan lögum samkvæmt ekki beita hótunum til þess að þvinga fólki til þess að samþykkja leit.
Biðji lögreglan um að fá að leita á þér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga:

  • Biddu lögreglu um ástæðu þess að hún vilji leita á þér.
  • Biddu um að fá að sjá lögregluskilríki viðkomandi lögreglumanna, þeim ber skylda að sýna þér þau.
  • Taktu niður nafn og lögreglunúmer viðkomandi lögreglumanna.
  • Lögreglan má ekki leita á þér án þess að fá samþykki þitt, með dómsúrskurði eða með því að handtaka þig.
  • Ekki gefa samþykki þitt ef þú telur þig ekki hafa gefið lögreglunni ástæðu til þess að hafa rökstuddan grun um að þú sért að fremja refsivert athæfi.

Lögreglan hefur heimild til þess að leita í fórum manna ef hún hefur rökstuddan grun um að hlutaðeigandi hafi framið brot sem varðað getur fangelsisrefsingu samkvæmt Almennum hegningarlögum.

Þá er vert að taka fram að það er ekki rökstuddur grunur í skilningi laganna að vera gestur á tónlistarhátið, það er heldur ekki rökstuddur grunur að hafa áður komið við sögu lögreglu eða að líta út eins og hippi. Rökstuddur grunur verður að byggjast á efnislegum og málefnalegum rökum. Lögreglunni er skylt að biðja um leyfi til leitar og viðkomandi aðila er heimilt að neita. Að neita leit jafngildir ekki rökstuddum grun um refsivert athæfi. Ef leit er neitað verður lögreglan annað hvort að leyfa viðkomandi aðila að halda áfram leið sinni eða handtaka manneskjuna. Ef manneskja er handtekin að ósekju – það er að segja svipt frelsi sínu – getur sú og hin sama átt rétt á skaðabótum frá ríkinu vegna ólögmætrar frelsissviptingar.

Annars er margt óljóst um viðhafða starfshætti lögreglunnar og hvaða mörk friðhelgi einkalífsins setur þeim eins og lesa má í þessari grein.

Við Edda ætlum okkur að fylgjast grannt með starfsháttum lögreglunnar á svæðinu og hvetjum lesendur Kvennablaðsins til þess að aðstoða okkur við það. Ef þið sjáið óeinkennisklædda lögreglumenn hvet ég ykkur til þess að taka mynd af þeim og senda á sunna@kvennabladid.is, þá tek ég einnig við sögum af samskiptum hátíðargesta við lögreglu. Nafnleyndar er heitið sé þess óskað. 

Að öðru leiti bendi ég á greinina sem ég skrifaði um þessa starfshætti í fyrra en hana má nálgast hér; almenna grein um réttarríkið sem við viljum búa í en hana má finna hér, sem og viðtal við þau Júlíu og Björgvin frá Snarrótinni í Harmageddon á dögunum.

Hér að neðan má svo finna plaggöt um réttindi þín gagnvart lögreglu frá Snarrótinni – Samtökum um borgaraleg réttindi. 

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Þekktu rétt þinn!

 

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Snarrótin plaggat


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283