Eins og svo ótal margt á þessari síðu er þessi uppskrift fengin frá mömmu Hún hefur verið bökuð svo ótal oft að það er ekki hægt að hafa á því tölu. Hún hefur aldrei klikkað og er sérstaklega þægileg til að nota í að gera fígúrur fyrir afmæli og regnbogakökur. Ég hef einnig sett þær í muffins form með góðum árangri.
Súkkulaðikaka
Hráefni:
2 bollar hveiti
1,5 tsk. lyftiduft
0.5 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
1,5 bolli sykur
200 g smjörlíki (ég nota smjör)
1 bolli mjólk (ég nota hrísmjólk)
2 stór egg
2–3 msk. kakó
Aðferð:
Kveikt á ofninum 175 °C.
Öllum efnum nema eggjum blandað saman í skál og hrært með hrærivél í 2 mín. eða þar til allt er vel blandað saman. Eggin látin út í og hrært áfram í ca 2 mín. Sett í 2 smurð lausbotna form og bakað í um það bil 35 mín.
Ég persónulega á ekki 2 mót sem eru jafn stór, mamma segist baka helminginn af deiginu og þegar fyrri botninn er tilbúinn þá notar hún sama form aftur og bakar hinn helminginn. Þetta er full mikið vesen finnst mér og ég hef því bara sett þetta í eitt mót og ef ég vil fá tvo botna þá sker ég kökuna í tvennt með kökusneiðaranum mínum. Ef þessi leið er farin þá vill kakan stundum verða pínu brunnin ofan á og ekki alveg tilbúin innan í. Því set ég álpappír yfir kökuna þegar hún er búin að lyfta sér og lítur út fyrir að vera tilbúin utan á en er enn þá blaut innan í.
Súkkulaðismjörkrem
200 g smjör (upphaflega uppskriftin kallar á smjörlíki en vér nútímakonur höfum breytt því!)
2 msk. vatn
2 msk. kakó
300 g flórsykur
1 eggjarauða
Helmingurinn af smjörinu og vatnið soðið saman, kakóið hrært saman við. Flórsykurinn sigtaður í skál og vökvinn hrærður saman við. Afgangurinn af smjörinu settur smátt og smátt út í og hrært á meðan, og síðast er eggjarauðunni bætt út í.
Kreminu er smurt á kökuna þegar hún er orðin köld. Tilvalið að strá kókos yfir til að skreyta.