Ræða Birgittu Jónsdóttur frá hátíðarfundi á Alþingi þann 19. júní 2015.
Kæru Forsetar, kæru hátíðargestir og kæra þjóð,
innilega til hamingju með daginn
Á Íslandi ríkir ójöfnuður, og því eru öll skref til jafnréttis framfaraskref, ekki satt? Konur hafa komist til valda víða en ójöfnuðurinn eykst og það hlýtur að vera bæði áhyggjuefni fyrir konur og karla, sem og hvati til að halda baráttunni fyrir alvöru jafnrétti áfram að miklum krafti.
Ég lít ekki svo á að neinum alvöru jafnréttissigri verði náð fyrr en ekkert barn á Íslandi fer í rúmið svangt, fyrr en gamla fólkið okkar og öryrkjar geta sofnað án þess að hafa áhyggjur af tómum ísskáp löngu fyrir mánaðarmót. Styrkur okkar sem samfélags er aldrei meiri en veikasti hlekkur þess. Fátækt sú er stigmagnast er smánarblettur á samfélagi sem býr að svo miklum auði sem móðir jörð og hafsfaðir hafa fært okkur, örríkinu.
Mig langar líka að beina sjónum að kvenskörungunum sem ruddu veginn fyrir þær sem ljóma í dag í því kastljósi sem við beinum að þeim. Allar þessar nafnlausu konurnar sem börðust fyrir því að fá að kjósa og alla nafnlausu öreiganna sem börðust fyrir þessum rétti sem loks varð að lögum fyrir öld. Og gleymum ekki konunum sem voru fyrstar til að hreinlega ryðja konum inn á þennan vinnustað, sjálfar Kvennalistakonurnar sem þorðu að búa til flokk án foringja. Þær ástunduðu róttækar tilraunir til að hefja sig úr hefðbundnum stjórnmálahefðum.
Konurnar sem stofnuðu stjórnmálaflokka sem í ljósi eigin reynslu er margfallt meiri vinna og margfallt meiri ögrun en að taka sér eitthvað ráðherrasæti. Oddvitakonurnar í kjördæmum úti á landi og að ógleymdum konurnar sem fá aldrei neina frægðarsól eins kvennastétt sú sem nú þarf að lúta lögbanni á aðgerðir til að bæta kjör sín og gleymum ekki heldur karlastéttinni sem laut líka lögbanni á verkfallsréttinn og telst til lögreglumanna, þeirra kjör eru líka bág miðað við ábyrgð og vinnuálag.
Við erum ekki bara að glíma við kynjamisrétti heldur við ójöfnuð og óréttlæti og það er enginn sérstakur fögnuður í mínu hjarta á þessum degi á meðan ég horfi upp á ónýtt ómanneskjulegt kerfi sem lætur bræður mínar og systur falla á milli möskvanna í lagatæknilegum þvættingi.
Af hverju finnst okkur í lagi að fagna einum degi sem með timburmannakostnaði eftir hátíðarhöld dagsins fellur í gleymskunnar dá á meðan hér er fjöldi fólks sem er múrað inn í algera þögn og blindu því við getum ekki séð sóma okkar í að tryggja að túlkunarsjóður þorni ekki upp árlega?
En það voru ekki bara kvenréttindi sem áunnust fyrir 100 árum, nei fátækir karlar fengu loks réttinn til að mega velja sér fulltrúa á þing. Gleymum því aldrei að við erum ekki bara að berjast fyrir konum og fagna árangri kvenna, heldur hljótum við að vera að berjast fyrir og fagna jafnrétti. En er hér alvöru jafnrétti á meðan við búum í samfélagi sívaxandi ójöfnuðar? Nei. Er hér jafnrétti þegar konur sunnan Hvalfjarðarganganna hafa aðeins um hálft atkvæði í dag miðað við konur norðan ganganna til að fá fulltrúa á þinginu? Nei. Er það jafnrétti þegar lögin ná ekki yfir alla, og hér búum við enn við Jón og séra Jón í lagatæknilegum skilningi? Nei.
En ekkert, ekki neitt mun breytast fyrr en konur taka sér stöðu í efnahagsmálum og koma með grunn að nýju kerfi þar í stað þess að apa upp valdaklíkukerfin og kasínófíknina. Konur, tökum aldrei valdið í fangið, verðum aldrei valdið, ef við getum það ekki, þá skiptir engu máli hver er hvar.
Ég ætla að enda þennan ræðustúf á ljóðinu Kona sem um margt er enn raunsatt, eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur, með leyfi forseta:
Þegar allt hefur verið sagt
þegar vandamál heimsins eru
vegin metin og útkljáð
þegar augu hafa mæst
og hendur verið þrýstar
í alvöru augnabliksins
– kemur alltaf einhver kona
að taka af borðinu
sópa gólfið og opna gluggana
til að hleypa vindlareyknum út.
Það bregst ekki.
Lára Hanna Einarsdóttir tók myndbandið saman og setti á Youtube.