Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Litla Ísöldin endurtekin?

$
0
0

Haraldur Sigurðsson skrifar:

Loftslagsbreytingar eru að gerast á jörðu. Það er ekki deilt um þá staðreynd. Hins vegar er deilt um orsökina. Er breytingin af manna völdum eða eitthvað náttúrulegt fyrirbæri? Sumir (þeir eru reyndar örfáir) telja að breytingarnar séu vegna mismunandi geislunar sólarinnar.

Auðvitað er sólin stærsta orkulind okkar. Hún gefur ylinn með sólskininu og einnig hefur sólin skapað þá jarðolíu og jarðgas, sem við brennum. Það eru aðeins jarðhitinn og kjarnorkan, sem eru orkulindir óháðar sólinni.

climate_widget_2013

 

Línuritið hér fyrir ofan sýnir breytingar á meðalhita á yfirborði jarðar frá 1950 til dagsins í dag (blátt). Einnig sýnir myndin hvernig koltvíoxíð hefur risið stöðugt (grátt), á sama hátt og hitinn.

Nær allur vísindaheimurinn er á þeirri skoðun að hækkandi hiti stafi af vaxandi magni af koltvíoxíði, sem við mannfólkið losum við brennslu á jarðefnum eins og kolum og olíu. Að lokum sýnir myndin sveiflur í virkni sólarinnar (gult). Það er ljóst að breytingar á virkni sólar hafa ekki haft nein áhrif á meðalhita jarðar á þessu tímabili.

Nú hefur rússneskur eðlisfrðingur Valentína Zharkova sett fram þá tilgátu að breytingar á sólinni eftir 15 ár muni valda mikilli kólnun á jörðu, jafnvel annari lítilli ísöld. Aðrir sólfræðingar hafa ekki enn birt álit sitt á kenningu hennar, en það verður fróðlegt að fylgjast með því.

 

Áður birt á bloggi Haraldar og birt hér með hans leyfi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283