Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fjölbreyttur Náttúrufræðingur kominn út

$
0
0

Fréttatilkynning:

Út er komið 1.–2. hefti Náttúrufræðingsins, 85. árgangs. Í heftinu, sem er 92 bls., eru tíu fræðandi greinar um náttúru landsins og fjölbreyttar rannsóknir á hinum ýmsu þáttum hennar. Forsíðugreinin fjallar um framandi sjávarlífverur við Ísland sem margar hverjar teljast ágengar tegundir í nágrannalöndum og spurning hver þróunin verður við Ísland, m.a. hvað varðar flundruna, sem fyrst fannst hér 1999 og grjótkrabbann sem fyrst varð vart í Hvalfirði 2006. Höfundar eru Karl Gunnarsson, Guðrún G. Þórarinsdóttir og Óskar Sindri Gíslason.

forsida_Nfr_85_1-2_small

Skúli Skúlason prófessor ritar leiðara sem nefnist Verðmæti hálendisins – sem enn er tekist á um. Af öðru efni má nefna grein Halldórs Þormars um upphaf lentiveirurannsókna en þekktasta veiran í þeim flokki er alnæmisveiran sem veldur hæggegnum smitsjúkdómi í mönnum. Lentiveirum var fyrst lýst hér á Íslandi 1954 í kjölfar rannsókna undir stjórn Björns Sigurðssonar forstjóra á Keldum á mæði og visnu og vakti kenning hans um þessa hæggengu sauðfjársjúkdóma heimsathygli.

Í heftinu eru þrjár greinar sem snerta laxfiska, m.a. ein um mosadýr en þau eru lítt þekktur hópur vatnadýra sem talin eru gegna hlutverki í alvarlegum sjúkdómi í laxfiskum, svokallaðri PKD-nýrnasýki sem greindist fyrst á Íslandi 2008. Þá fjalla þrír sérfræðingar við Hólaskóla um fæðu- og óðalsatferli ungra laxfiska og tveir sérfræðingar Veiðimálastofnunar um farleiðir sjóbleikju um ísalt svæði.

Veðurfræði er einnig á dagskrá í Náttúrufræðingnum, Þór Jakobsson ritar örstutt ágrip af forsögu nútíma veðurfræði og veðurfræðingar segja frá élja- og seltuveðri sem gekk yfir landið 10. janúar 2012.

Þá er kynntur til sögu nýr landnemi, í grein um sniglanárakk, en það er bjalla sem fannst fyrst vorið 2012, gerð grein fyrir samanburði á fjörulífi fyrir og eftir þverun Dýrafjarðar 1991 og fjallað öðru sinni um Hallmundarkviðu og áhrif eldgoss mannlíf og byggð í Borgarfirði.

Náttúrufræðingurinn er félagsrit Hins íslenska náttúrufræðifélags og tímarit Náttúruminjasafns Íslands. Í þessu heftinu er að finna skýrslu stjórnar HÍN fyrir starfsárið 2014 ásamt reikningum félagsins. Ritstjóri er Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur, og formaður ritstjórnar er Droplaug Ólafsdóttir, dýrafræðingur. Að jafnaði eru gefin út fjögur hefti á ári, en útgáfa ritsins hófst 1931. Áskrift sem jafnframt er árgjald í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi er 5.800,- kr, námsmannagjald kr. 4.000,- og hjónaáskrift kr. 6.500,-. Náttúrufræðingurinn fæst í lausasölu í verslunum Pennans og Eymundson. Áskriftarsíminn er 5771802 eða hjá hin@hin.is.

Efnisyfirlit_Nfr_85_1-2_big


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283