Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nýir seiðandi Spánverjar í Vínbúðunum

$
0
0

Um síðustu mánaðamót byrjuðu nokkur afar skemmtileg spænsk vín í Vínbúðunum sem vert er að gefa gaum. Þessi vín eru í öllum verðflokkum þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér ætlum við að fjalla um nokkur þeirra.

villa conchi wineyard

Legado Munoz frá Castilla

Munoz-fjölskyldan hefur búið til vín um langt skeið í Castilla-La Mancha á spænsku hásléttunni. Þeir eiga 400 ha af gömlum vínvið þar sem meðalaldur vínviðarins er um 40 ár. Víngerðin er afar nýtískuleg en þeir eiga jafnframt 1500 eikartunnur til að elda vínin á hefðbundinn hátt. Vínin frá þeim eru því afar vel gerð en jafnframt á alveg frábæru verði eins og þessi 2 sem nú fást í Vínbúðunum.

Legado de Nunoz Garnacha

Legado Munoz Garnacha 2013 kr. 1.890

Eins og heitið gefur til kynna er þetta vín eingöngu gert úr garnacha þrúgunni sem er sama þrúgan og grenache í Frakklandi og víða. Dökkrauður litur og í nefi má finna angan af rauðum þroskuðum ávöxtum og krydduðum tónum eins og negul og papriku. Í bragði má finna milda eikartóna, dýrafitu og mild tannin. Passar vel með steiktu og soðnu kjöti og fullkomið með alls kyns tapasréttum. Steingrímur Sigurgeirsson skrifaði um vínið nýverið og gaf því lofsamlega dóma.

Legado Munoz Tempranillo

Legado Munoz Tempranillo 2014 kr. 1.890

Þarna er það hin spænska tempranillo þrúga sem ræður ríkjum en hún er eins og flestir vita langvinsælasta þrúgan í spænskum vínum. Angan af þroskuðum granateplum, rifsberjum og brómberjum með smá krydduðum tónum. Í bragði má finna rauð ber og vínið er í afar góðu jafnvægi og bragðið endist lengi í munni.

Hin dásamlegu vín frá Pago de Cirsus

Pago de Cirsus er ein af fáum víngerðum á Spáni sem kemst í hæsta gæðaflokk spænskra vína eða„Denominación de Origen Vino de Pago“en þessi nýja reglugerð var sett af spænska þinginu árið 2003 með það að augnamiði að auka framleiðslu á gæðavínum á Spáni. Víngerðin er í Navarra og það er óhætt að segja þarna er öllu tjaldað til svo gæðin nái hæstu hæðum. Flokkur þekktra víngerðarmanna undir stjórn Jean Marc Sauboua fer fyrir víngerðinni en Jean Marc var aðal víngerðarmaður Chateau Haut-Brion í Bordeaux, víngerð sem talin er ein af 10 bestu í heiminum. Vínin frá þeim hafa hlotið fjöldi verðlauna og viðurkenninga úti um allan heim. Loksins fást 2 vín frá þessum frábæra framleiðanda í Vínbúðunum, eitt rautt og eitt hvítt.

paco de Cirsus chardonnay

Pago de Cirsus Chardonnay 2013 kr. 2.249

2013 árgangurinn er afar góður enda hjálpaði veðrið þar mikið til. Þrúgurnar voru tíndar viku fyrr en venjulega enda þroskuðust þær óvenju snemma vegna þurrka. Þetta vín er búið að fá fjölmörg verðlaun, m.a. gullverðlaun 2015 hjá International Wine Challence, hjá Decanter Wine Awards og hjá Mundusvini Germany. Fékk svo ekki minna en 94 punkta af 100 mögulegum hjá Guia Penin á Spáni. Í víninu má finna angan af suðrænum ávöxtum, ananas og mangó. Sem sagt afar ávaxtaríkt, með góðri endingu og sýru. Hentar vel með öllum hvítum fiski, hvers kyns salati og mjúkum ostum eins og camembert og brie. Afar gott líka eitt sér.

Paco de Cirsus Vendimia

Pago de Cirsus Vendimia Seleccionada 2011 kr. 2.490

Eins og með hvítvínið voru allar aðstæður 2011 hagstæðar fyrir þetta vín enda vínið eftir því. Þetta er blanda úr 3 þrúgum eða tempranillo, merlot og shiraz. Vínið var látið eldast í 12 mánuði á franskri (90%) og amerískri (10%) eik og svo í 12 mánuði í flöskunni. Eins og hvítvínið hefur þetta vín fengið fjölda verðlauna m.a. gullverðlaun hjá Sommelier Wine Awards, Decanter Wine Awards og Mundus vini svo og 94 punkta hjá Guia Penin Spáni. Þarna má finna fullt af svörtum berjum og balsamic tóna. Silkimjúkt á tungunni, í góðu jafnvægi með afar löngu eftirbragði. Frábært með öllu grilli, góðum steikum og pasta bolognese.

Altos1

 

Altos víngerðin frá Rioja

Altos vínin byrjuðu í Vínbúðunum á síðasta ári og hafa aldeilis slegið í gegn. Altos Crianza vínið hefur mörgum sinnum orðið uppselt í Vínbúðunum enda fengið frábæra dóma hér á landi. Nú loksins fást 2 ný vín frá þessari flottu víngerð.

verdlaun

 

Vínin frá Altos hafa fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga eins og sést hér á myndinni að ofan.

Altos res

Altos R Reserva 2007 kr. 3.754

Þetta er stóri bróðir Altos Crianza og þarna er á ferðinni aldeilis frábært vín. Vínið er látið eldast á eikartunnum í 20 mánuði sem snúið er á 6 mánaða fresti. Í nefi má finna býflugnavax, fínlega kryddtóna, leður og fullt af svörtum berjum. Í munni kemur svo fram ristuð vanilla og leðurtónar með kirsuberjatónum. Vínið er ávaxtaríkt og silkimjúkt. Passar afar vel með kolagrilluðum steikum, villibráð og hörðum ( cured ) ostum.

Altos Blanco

Altos Blanco 2013 kr. 2.190

Hvítvínið frá Altos gefur rauðvínunum lítið eftir en það er gert úr Viura (60%) og Malvasia (40%) þrúgunum. Þetta vín er afar ferskt og blómlegt. Í nefi má finna blómlega tóna og hvíta ávexti eins og perur og suðrænum ávextum. Vínið er þurrt en með góða sýru sem heldur því lifandi lengi. Yndislegir þroskaðir ávextir í endann. Passar vel með grilluðum fiski, fersku grænmeti og salati eða bara eitt sér. Ekta sumarvín!

Val di Vid hvítvínin frá Rueda

Val di Vid er lítil víngerð í Rueda og staðsett á háslettu 700–800 metra hæð yfir sjávarmáli þar sem langir kaldir vetur og þurr heit sumur mynda góðar aðstæður fyrir hvítvínsframleiðslu. Val di Vid víngerðin er þekkt fyrir frábær verdejo hvítvín og nú fæst eitt slíkt í Vínbúðunum.

ValdeVid_Verdejo

Val di Vid Verdejo 2014

Þetta vín eins og flest sem hér hefur verið fjallað um hefur hlotið alls kyns alþjóðlegar viðurkenningar.

verdlaun2

 

Í nefi er það afar ilmríkt og má finna hvíta ávexti eins og peru og epli svo og suðræna ávexti. Kryddaðir tónar af heyi og fennel með balsamic undirtómnum og anís. Vínið er flókið og í góðu jafnvægi. Frábært með alls kyns hrísgrjónaréttum, reyktum fiski, salötum og pasta með fiski og kjöti í hvítri sósu.

Og svo rúsínan í pylsuendanum, nýtt flott cava freyðivín!

Javier Galarreta lét draum sinn rætast og finna stað þar sem hann gæti framleitt frábær cava freyðivín og leitaði víða í Katalóníu. Hann fann fullkominn stað í Penédes og hóf að gera gæða freyðivín. Meðan á leitinni stóð lést móðir hans, Conchi, og hann ákvað að nefna þessi flottu vín eftir henni. Hér á landi fæst eitt af þessum flottu cava vínum og það á frábæru verði!

Villa Conchi

Villa Conchi Brut Seleccion kr. 1.990

Þrúgurnar í þetta vín eru tíndar að næturlagi til að forðast ótímabæra gerjun og fluttar með hraði í víngerðina og geymdar þar í 10° hita til að koma í veg fyrir að þrúgurnar liti vínið. Þar fer víngerðin svo í gegnum afar flókið kerfi í nýjustu græjum og útkoman er eftir því góð. Þegar búið er að setja vínið í flöskur fer seinni gerjun fram í þar til gerðum kjöllurum í 15-17° hita. Þessar flöskur eru svo geymdar að minnsta kosti í 12 mánuði við þessar aðstæður. Og útkoman, ójá… Látum vínsérfæðinginn Steingrím Sigurgeirsson á vinotek.is lýsa víninu:

„Spænsku Cava-freyðivínin geta verið ansi hreint góð, ekki síst frá minni framleiðendum sem að leggja mikið í framleiðsluna. Villa Conchi er eitt af þessum vínum, blanda úr Xarello, Macabeo, Parellada og Chardonnay. Vínið er gert með kampavínsaðferðinni, það hefur þokka og bara töluverðan elegans. Tært, með ferskri hreinni ávaxtaangan, sítrus, smá brioche, smá möndlur, ferskt og stílhreint í munni, með þægilegri sýru. Verulega gott cava.
1.990 krónur. Frábær kaup.“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283