Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Guggan er sokkin, Kristján! – Píkur í kjarabaráttu, 3. bindi

$
0
0

„Við skulum aðeins róa þetta niður,“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í vikunni. Sá eini sem var æstur í viðtalinu var hann sjálfur. Hann var svo æstur að hann greip í sífellu fram í fyrir annars ágætum útvarpsmönnum og náði þannig að afvegaleiða umræðuna einu sinni enn, eða snúa ofan af fullyrðingum eins og hann sjálfur kallar það.

Kristjáni finnast fyrirsagnir blaðanna glataðar og telur þær ekki endurspegla innihald fréttanna í blöðunum. Hann gaf líka í skyn að útvarpsmennirnir væru ekki merkilegir pappírar hafandi varið morgninum í að lesa þessar glötuðu fyrirsagnir.

Kristjáni Þór finnst leiðinlegt að búið sé að „tala niður“ heilbrigðiskerfið frá hruni. Ég velti fyrir mér hvort það sé eitthvert sjómannamál því á minni íslensku heitir þetta niðurskurður og minni þjónusta.

Heilbrigðisráðherra minnti á að hans hlutverk væri að „reka kerfið“, hvað svo sem það þýðir á sjómannamáli. Það eina sem við heilbrigðisstarfsfólk finnum fyrir er að hann er að reka okkur – úr landi.

Kristján talaði líka um að hikað hefði verið við að setja lög á verkfall hjúkrunarfræðinga og BHM. Já einmitt! Hikið var 2 x 45 mínútur með 15 mínútna hléi í hálfleik á landsleik í fótbolta.

Ráðherrann sagði að hjúkrunarfræðingar hefðu sagt upp og staðið við uppsagnirnar árið 2012. Það er ekki rétt. Í lok árs 2012 og byrjun árs 2013 sagði fjöldi hjúkrunarfræðinga upp, en flestir drógu uppsagnirnar til baka. Við vorum örfá sem hættum á vordögum 2013. Ég veit ekki hvernig ég get orðað það betur fyrir skipstjórann Kristján en að núna er Guggan sokkin.

Ljósmynd Tryggvi Sig

Ljósmynd Tryggvi Sig

 

Það er greinilegt að heilbrigðisráðherrann Kristján Þór er mikill aðdáandi síðustu ríkisstjórnar. Hann trúir því að sú ríkisstjórn hafi hrundið af stað jafnlaunaátaki sem hafi ekki virkað. Staðreyndin er sú að það var engu jafnlaunaátaki hrundið af stað heldur var um að ræða tilraun þáverandi heilbrigðisráðherra til að slá sig til riddara í baráttu um formannssæti í Samfylkingunni.

Kristján talaði um að ekki væri hægt að hækka laun hjúkrunarfræðinga á stundinni, í sama mund og hann ræddi að það væri að greiðast úr efnahagsmálum þjóðarinnar. Sannleikurinn er sá að það er enginn að tala um að gera eitthvað á stundinni. Baráttan byrjaði fyrir áratugum. Það eru hjúkrunarfræðingar komnir á eftirlaun í dag sem stóðu í sama stappi. En strax er víst teygjanlegt hugtak.

Þá talaði Kristján um að ef til uppsagna hjúkrunarfræðinga komi verði þjónustan ekki eins góð og við viljum hafa hana, hún verði veitt með öðrum hætti. Í dag er þjónustan ekki nærri eins góð og við hjúkrunarfræðingar viljum hafa hana. Það er eiginlega magnað ef hann hefur setið á einhverjum góðum hugmyndum um bætta þjónustu í tvö ár án þess að hafa viðrað þær. Hvar er ráðherraábyrgðin?

Einnig ræddi heilbrigðisráðherra þann kost að ráða erlenda hjúkrunarfræðinga og nefndi í því sambandi að streymi geti ekki gengið í aðra áttina! Nýleg könnun sýnir að helmingur ungs fólks getur hugsað sér að búa erlendis og er það fjölgun frá fyrri könnunum. Þetta unga fólk er meðal annars börn og fjölskyldur þeirra hjúkrunarfræðinga sem eru í kjarabaráttu.

Þetta unga fólk er búið að fá nóg af ástandinu á Íslandi. Það eru fjölmörg lönd í heiminum þar sem straumur fólks liggur einungis úr landi. Til dæmis lönd þar sem átök geisa. Á Íslandi eru átök – það er stríð á milli örfárra spilltra ráðamanna og venjulegs fólks sem sér sér ekki fært að lifa í samfélagi verðtryggingar, lágra launa og lélegs heilbrigðiskerfis. Þessi þjóð getur huggað sig við að það þarf allavega ekki að flytja inn ódýra stjórnmálamenn, það er offramboð á þeim þessa dagana.

Eygló félagsmálaráðherra vill að fullorðin börn búi inni á foreldrum sínum. Hvar myndi hún vilja að útlensku hjúkrunarfræðingarnir hans Kristjáns Þórs búi? Það verður sennilega nóg pláss heima hjá foreldrum okkar vanþakklátu hjúkrunarfræðinga þegar við leitum á önnur mið.

Ég velti fyrir mér hvort Íslandi hafi einhvern tíma áður verið stjórnað af jafn vanhæfu fólki og situr í núverandi ríkisstjórn. Ég leyfi mér að efast um það og tek undir með Kristjáni Þór að fólk sé skíthrætt. Fólk er skíthrætt við þessa ríkisstjórn og að hún skuli hafa tvö ár í viðbót til að stunda óbætanleg skemmdarverk á íslensku samfélagi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283