Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Aðgát skal höfð í nærveru sálar – alltaf

$
0
0

Ég hef alltaf verið í kjörþyngd, rétt yfir og undir, nema þegar ég varð ólétt því þá tróð ég í mig og bætti töluvert á mig.

Ég á þrjá stráka, einn er 14 ára, einn er 11 og litli er að verða 2 ára, á öllum meðgöngunum þyngdist ég yfir 40 kg sem er mjög mikið – ég veit.

Ég náði öllu af mér strax þegar ég var búin að eiga elsta, næstum öllu eftir að ég átti miðjuna mína en núna stend ég í stað eftir að ég átti litla og eftir þá meðgöngu er ég ennþá 30 kg of þung sem er mikið, ég veit,  en fólk er upptekið af því hvað ég hef þyngst.

Allir strákarnir mínir voru yfir 50 cm og allir voru þeir 20 merkur, rosa boltar, enda borðaði ég mjög mikið þegar ég var ólétt og fæddist sjálf mjög stór. Á öllum mínum meðgöngum borðaði ég oft og mikið, ég var alltaf svöng og mér var alltaf flökurt ef ég varð svöng. Ég var í einhverjum vítahring.

Í dag kemst ég ekki í fötin mín, er óöruggari , á erfiðara með að fara í sund og ýmislegt fleira sem mér þykir vera verra að gera vegna þess að ég er þyngri. En ég veit þetta er bara tímabil og ég á eftir að ná þessu öllu af mér.
Ég er núna búin að prófa að vera í yfirþyngd í töluvert langan tíma og ég bara hreinlega finn til með þeim sem eru það því ég finn hvað það er „erfitt“ að vera of þungur.

Hér var ég í kjörþyngd

Hér var ég í kjörþyngd

Ég fór til læknis þurfti að fara á vigt, hún sagði: „þú verður að grenna þig, þú ert allt of þung” þess má geta að ég fór til hennar útaf allt öðru heldur en þyngd minni.

Ég fæ reglulega að heyra setningar eins og:

„Þarftu ekki að hreyfa þig?“
„Þarftu ekki að fara út að labba?“
„Þú þarft að passa þig“
„Veistu hvað þetta er hættulegt?“
„Þú varst ekki svona áður“
„Þegar þú varst gella“
„Já, þú varst alltaf svo sæt“
„Ji, ég þekkti þig ekki, búin að fitna?“
„Mikið hefur þú bætt á þig“
„Einu sinni varst þú svo flott“
„Hey, ég skal draga þig í ræktina“
„Þú verður að passa að verða ekki sykursjúk“
„Hvað ert þú orðin þung?”

og svona gæti ég haldið áfram …

Ok, ég veit að margt sem er sagt við mig er gert af kærleika frá fólki sem vill mér bara vel en ég hugsa samt „hvernig myndi mér líða ef ég væri alltaf of þung?“

Þegar ég var ólétt

Þegar ég var ólétt

Ég veit ég á ekki að vera „feit“ og ég veit það fer mér betur að vera í kjörþyngd, ég veit það er hollara og allt það en mér finnst alveg fólk gleyma því að ég er líka alveg ennþá ég þó svo ég hafi fitnað á meðgöngu. Ég er alveg sama Alma og fólk má ekki gleyma því.

Æ, ég fór bara að hugsa þetta, fór bara að pæla í hversu margir eru of þungir, eru kannski veikir eða með sjúkdóma og geta bara ekki grennst, hversu erfitt er að hlusta alltaf á eitthvað um það hversu feitur maður sé, eða þurfi að gera þetta og hitt til þess að laga það.

Sumir eru bara mjög ánægðir í eigin skinni. Sumir geta ekki og hafa kannski lagt svo mikið á sig til þess að ná af sér aukakílóum. Matarfíkn, vanlíðan, þunglyndi – það er svo margt sem getur spilað inn í og það er svo margt sem getur gert það að verkum að fólk þyngist.

Hér er ég komin framyfir og búin að fitna um 40 kg.

Hér er ég komin framyfir og búin að fitna um 40 kg.

Við þurfum öll að vanda okkur, hrósa öðrum og byggja einstaklinga upp en ekki segja eitthvað sem getur sært eða sett ör á sálina.

Við þurfum öll að vera nærgætin, hvernig við tölum skiptir svo miklu máli. Þó svo að eitthvað sem við segjum myndi ekki særa okkur sjálf þá getur það sært aðra.

Margir eru of uppteknir af þyngd annarra, við sjáum það í kringum okkur hvernig staðalímyndin er orðin.

Það eru allir fallegir á sinn hátt. Það hafa allir eitthvað við sig.

Hrósum, tölum fallega, ef stelpan sem er að afgreiða er með flott hár, segðu henni það þá, ef stelpan í Kringlunni er með flott tattú, segðu henni það þá, ef þú færð góða þjónustu láttu þá vita.

Horfum á einstaklinginn eins og hann er burt séð frá kílóafjölda.

Hugleiðing dagsins.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283