Þrjár myndir.
Þrjú þing (mætingar voru ekki skráðar á nefndarfundum fyrir þessi þing á tölvulesanlegan máta).
Það eru sífellt að skjóta upp kollinum spurningar um mætingu Pírata síðan frétt þess efnis birtist í Morgunblaðinu. Tölurnar sýna hins vegar annað.
Þingmenn eru ýmist skráðir sem formenn, nefndarmenn, áheyrnarfulltrúar eða varamenn. Ef þingmaður er skráður annaðhvort sem formaður eða nefndarmaður er ætlast til þess að viðkomandi mæti og þar hefst talningin. Þingmenn eru ekki alltaf í sömu nefnd í heilt þing. Sumir hætta á þingi, aðrir koma inn og enn aðrir verða ráðherrar. Því er mikilvægt að telja bara þá fundi sem eru haldnir í hverri nefnd sem viðkomandi þingmaður er aðalmaður í á meðan hann er skráður í þá nefnd. Upplýsingar um þingmenn útvega þau gögn.
Spurningin er þá, hversu marga fundi á hver þingmaður að mæta á? 100% mæting myndi væntanlega vera ef þingmaður mætir á alla fundi sem hann er skráður sem aðalmaður í. Mætingareinkunn væri þá hlutfall af öllum þeim fundum sem þingmaður á að mæta á og þeim fundum sem hann mætir á (sem aðalmaður, varamaður eða áheyrnarfulltrúi). Það er það sem myndirnar sýna. Fjöldi funda sem viðkomandi þingmaður á að mæta á, fjöldi funda sem hann mætir á og línan sýnir hlutfallið þar á milli. Lengst til vinstri er sá þingmaður sem hefur hæsta mætingarprósentu og lengst til hægri sá sem er með lægsta.
Það er ýmislegt hér sem verður svo að taka tillit til. Gögnin eru ekki fullkomin. Það eru dæmi um að fundargerðir séu ekki til, að mæting sé ekki rétt skráð og veikindi eða aðrar löglegar fjarvistir séu ekki talin með. Það skekkir þó ekki heildarmyndina en segir þó að það á ekki að líta á slæma mætingu sem heilagan sannleik. Það sem gögnin sýna hins vegar er hversu rangt Morgunblaðið hafði fyrir sér með sinni talningu. Gögnin sýna að þingmenn Pírata eru með nær fullkomna eða betri mætingu á öllum þingum sem gögn eru til um í mætingu á nefndarfundi (og ég veit fyrir víst að það er lögleg fjarvist á þá fundi sem vantar upp á fyrir 100% mætingu þar sem ég mætti á hluta af þeim, eða aðrir varaþingmenn, eða það er fjarvist vegna veikinda/ferðalaga á vegum þingsins).
Tenglar á gögn:
Ég hef áður dreift talningu á mætingu þingmanna, en þá var það bara hrá fjöldatalning á mætingu. Sú talning var ekki nægilega nákvæm og var ósanngjörn fyrir þingmenn sem eru í nefndum þar sem eru ekki eins margir fundir og í öðrum nefndum og gefa einnig skakka mynd miðað við mætingu þingmanna sem eru í fleiri en einni nefndum.