Sú var tíðin að talist hefði ómálefnalegt að tala um vitfirrta ríkisstjórn. Löngu liðin tíð þótt einstaka fólk, fast í viðjum afneitunar, reyni enn að halda slíku fram. Núverandi stjórnarmeirihluti er eitthvert furðulegt samansafn vitleysinga, hægriróttæklinga og svo fólks sem einfaldlega er illa innrætt. Þau reka hugmyndafræðilegan niðurskurð og endurröðun gæða í þágu fámenns hóps. Þau skera niður á meðan þau hreykja sér að uppbyggingu og aðhaldi. Til að fela raunveruleg markmið sín sveipa stjórnarliðar sig ‘mystískum doublespeak’ frösum um aðhald, áætlanir til framtíðar og samkeppnishæfni. Raunin er sú að Íslendingar eru að skera niður til þess að geta gefið rafmagnið til stóriðju og kvóta til vina stjórnarliða. Það er markmiðið!
Í þessum hóp er húsnæðismálaráðherra Eygló Harðardóttir. Um nokkurt skeið tókst henni að sannfæra ansi marga um að hún væri einhver önnur tegund af stjórnmálamanni. Heiðarlegur framsóknarmaður á hún víst að vera. Nýlega skrifaði Eygló bloggfærslu um stilt og prútt ungt fólk sem að ráðdeild bjó lengi heima hjá foreldrum sínum, lærði hægar, átti ekki bíl né tölvu eða síma og tók aldrei lán. Bloggið var í raun hefðbundið fyrir fátæktarblæti Framsóknarflokksins. Yfirlætisfullur þvættingur höfundar sem getur ekki horfst í augu við eigið þekkingar- og skilningsleysi á efnahagsmálum.
Í færslu sinni „Er lán lukka?“ tókst Eygló að staðfesta að hún er ekki bara vanhæfur ráðherra – heldur beinlínis hættuleg. Færslan afhjúpar að Eygló er rekin áfram af samkurli samsæriskenningar, niðurskurðargleði, fortíðarþrá og hyldýpi vanþekkingar á efnahagsmálum. Í færslunni reynir Eygló að fegra afleiðingar þess að hafa enga húsnæðisstefnu. Með rómantískum blæ lýsir hún landi þar sem húsnæðismálaráðherra hefur ekki staðið sig. Land þar sem velferðaráðherra hefur stundað blyggðunarlausan niðurskurð og land þar sem menntun er fyrir hina ríku – hinir efnaminnu geta þó fengið hana hægar. Þó auðvitað ekki of hægt því 25 ára og eldri fá ekki inn í framhaldsskóla.
Í draumaríki húsnæðismálaráðherra er það fjölskyldan en ekki ríkið sem rekur velferðarkerfið.
Eygló á að koma í veg fyrir að ungt fólk festist á heimili foreldra sinna. Hún á að koma í veg fyrir að ungt fólk verði að velja á milli menntunar eða húsnæðis. Á milli húsnæðis eða barneigna. Hún á að koma í veg fyrir að ungt fólk sé fast í efnahagslegum fjötrum foreldra sinna.
Við rekum velferðar-, mennta- og húsnæðisstefnu vegna þess að allt er þetta fjárfesting sem marg borgar sig. Við gerum það líka til að koma í veg fyrir að kynslóðir eftir kynslóðir geti ekki brotið sig úr stéttarstöðu foreldra sinna. Það sem Eygló talar upp sem ráðdeild er óumflýjanleg afleiðing af handónýtri stefnu hennar og flokksins hennar. Hún boðar ekki ráðdeild heldur uppgjöf…. eða er þetta kannski markmiðið? Það virðist nefnilega blautur draumur þessar ríkisstjórnar og þingmanna hennar. Aftengjum velferðarkerfið, smækkum ríkið og látum lágstéttina lifa lengur hjá mömmu og pabba.
En Eygló er með svarið … krúttbloggherferð!
Vandamálið er að núverandi stjórnarmeirihluti skilur ekki efnahagsmál. Þau telja sig gera það en gera það ekki. Þau tala eins og þau geri það. Þau gera það bara alls ekki! Þau reka heimili og stofna fyrirtæki sem í þeirra huga þýðir að þau skilji efnahagsmál. Ríkisbókhaldið er jú bara heimilisbókhald – ekki satt? Nei, ríkisbókhaldið er það bara alls ekki. Þótt vissulega sé aðlaðandi að aðhyllast slíka þvælu þá er ríkisbókhaldið ekki heimilisbókhald. Það lýtur ekki sömu lögmálum.
Hvers vegna nýtur þetta bull svo mikils fylgis meðal fólks sem telur sig skynsamt? Hvernig getur fólk sem trúir jafn innantómri þvælu raðað sér í ráðherrastóla? Jú, vegna þess að hagkerfið er flókið – óendanlega flókið – nánast óskiljanlegt. Ef þú segir fólki að hagkerfið sé bara stærri útgáfa af fyrirtækjabókhaldi eða heimilisbókhaldi þá ertu að selja þeim hugmynd sem þau vilja kaupa. Þú selur þeim það að þau skilji efnahagsmál enda reka þau sjálf heimili – jafnvel fyrirtæki! Svo snjallir þessir bissnessstrákar … fáum þá bara til að reka þetta samfélag!
Undanfarin tvö ár hefur almenningur mátt lifa við sturlaða retórík fáránleikans. Hér á að skera niður á leifturhraða til að binda komandi kynslóðir ekki í skuldafjötra. Til þess skal rústa menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu og blæða út stofnanir.
Eygló segir: „Það er ekki hægt að spara á Íslandi,“ hef ég oft heyrt frá fólki í kringum mig og mér sjálfri. Ég var lengi vel alveg sannfærð um þetta og gerðist því í staðinn sérfræðingur í að taka lán.“ Þetta var fortíðin en nú er Eygló að eigin sögn bætt kona: „Í dag þegar ég heyri enn á ný talað um að ekki sé hægt að spara og fyrir auknum lántökum þá hugsa ég til þessara vina, – sem trúðu ekki að lukkan fælist í lánum heldur eigin hagsýni og ráðdeild. Þetta er fólkið sem ég vil gjarnan læra af og kenna mínum börnum að það er til önnur leið en sú sem ég valdi.“
Það þarf enga sérstaka þekkingu á sögunni til að sjá að í Eygló holdgerist saga Framsóknarflokksins. Flokkurinn er og verður froðuflokkur – hagsmunabandalag fárra sem treystir á populískan vindhanahátt til að viðhalda völdum. Kasta brauðmolum falskra loforða til að soga til sín hóp fólks nægilega örvæntingarfullt til að kjósa þau. Manstu eftir 90% lánum, fíkniefnalausu Íslandi, múslimalausri Reykjavík, verðtryggingalausu Íslandi, leiðréttri millistétt …?
Sjálf hellti Eygló sér af öllum mætti í lán, lifði eins og drottning, menntaði sig, keypti íbúð og keyrði bíl. Flokkurinn hennar henti sér af öllum mætti í að selja ríkiseignir, lækka skatta – sem er einfaldlega lántaka frá komandi kynslóðum ef það er ekki rétt gert – gaf raforku og dældi fé í flokkshesta, gaf banka og gróf undan ríkisvaldinu og rústaði náttúrunni. Að lokum endaði partíið fyrir þau flokkinn og Eygló … eða hvað?
Þegar allt var komið í skrall tók Eygló viðsnúning með flokknum. Nú var það innbyggð kerfisvilla sem rústaði hagkerfinu og heimilisbókhaldi. Hafði ekkert með hana að gera! Lán voru vond og sparnaður góður en fyrst varð að leiðrétta. Nú þarf bara að skera RÚV, vegakerfið, húsnæðiskerfið, spítala og menntakerfið á háls og spara til að laga kerfisvilluna sem olli síðustu bólu.
Framsókn eins og Eygló lærði með því að krefja aðra um ráðdeild. Framsókn gaf banka, Landsímann og fjölda ríkiseigna. Þingmenn flokksins menntuðu sig með stuðning samfélagsins en boða svo ráðdeild fyrir næstu kynslóð. ‘Við höfum bara ekki efni á þessu! Nú þarf skynsemi…’
Hafi einhver trúað því að Eygló væri ný tegund af framsóknarkonu, önnur og betri, þá þarf ekki annað en að skoða hvernig Eygló og Framsókn eru samofin. Bæði eru alltaf í partíinu. Yfirlæti og sérhlífni er flokknum og Eygló eðlilegt. Stuðningur fyrir þau, en darwinísk nýfrjálshyggja fyrir aðra.
Skuldsetta kynslóðin menntaði sig frítt – eða þvísem næst – borgaði ekki fyrir heilbrigðisþjónustu og fékk aðstoð við húsnæðiskaup. Svoleiðis lúxus er nú búinn … ráðdeild er það sem unga fólkinu er boðið. Bara eftir að það var búið að leika í auglýsingum fyrir leiðréttingua.
Þegar Framsóknarflokkurinn var að bjarga ‘heimilinum’ með leiðréttingu birtust trénaðir gamlir framsóknarmenn ekki á skjánum til að selja hugmyndina. Það fór raunar lítið fyrir Framsóknarplebbum í markaðsefni leiðréttingarinnar – þar var ungt fólk sem hjólar. Nei, hér birtist ungt fólk í sætum íbúðum með eitt til tvö börn. Inntökuskilyrðið leikaranna var að fæðast eftir 1980. Inntökuskilyrði leiðréttingarinnar var að fæðast fyrir 1980. Framsókn notaði ungt fólk til að selja eigin lygar – aftur…
Við skulum þó ekki halda að við sem fædd erum eftir 1980 fáum ekki að vera með! Það er verkaskipting í þessu samfélagi og unga fólkið – það sama og notað er til að afsaka hvern blóðuga niðurskurðinn eftir öðrum – fær að borga niðurgreiðsluna. Hún er enda lán frá komandi kynslóðum.
Nú þegar framsóknarmenn höfðu fengið leiðréttingu gat viðsnúningurinn hafist. Nú eiga allir að spara – spara, spara, spara.
Eygló tók lán eins og vindurinn og fékk aðstoð samfélagsins við nám. Hún gat flutt fyrr út af heimili foreldra og þurfti ekki að borða núðlur til fertugs vegna þess að í landinu ríkti stjórnmálaflokkur með fátæktar- og örvæntingarblæti. Þetta er reyndar ekki rétt – í landinu ríkti þessi flokkur fávita en atgervisflóttinn var aðeins minni en í dag. Þá er um að gera að hefjast handa við að selja þá hugmynd að fólk sé bara aðeins lengur hjá foreldrum sínum og læri hægar til að geta unnið hlutastörf á lágum launum lengur.
Þessi stefna Eyglóar er reyndar alveg frábær í framsóknarheimi. Unga fólkið getur skúrað og steikt franskar lengur. Með aðhaldi má svo draga hagkerfið saman og minnka þörfina á útlendingum. Þannig má reka efnahagsstefnu sem gagnast ríka leiðréttafólkinu sem kaus framsókn – og mun halda áfram að kjósa þessa steypu – og svo takmarka innflæði útlendinga, íslenskum gildum til varnar.
Hvað er svona vont við sparnaðarblæti Eyglóar?
Það er ekkert að því að spara. Eygló er hins vegar að boða sparnað sparnaðarins vegna. Það er engin ástæða til að halda ungu fólki heima hjá foreldrum lengur en nauðsynlegt er. Það er meira að segja skaðlegt í sjálfu sér. Í fyrsta lagi þá er Ísland ungt þjóðfélag sem þarf að búa sig undir að kúrfan breytist. Það er því fátt heimskulegra en að fjárfesta ekki núna og koma ungu fólki strax í verðmætasköpun. Ein leið til þess er t.d. að fjárfesta í innviðum; húsnæði, menntun og heilbrigðiskerfi.
Það er einfaldlega ekki hagkvæmt fyrir samfélagið að fólk fresti fjárfestingum í íbúðum, menntun og fjölskyldu. Því seinna á ævinni sem fólk menntar sig því skemur nýtur samfélagið starfskrafta hins menntaða einstaklings. Þótt jafn mikið hafi kostað að mennta hann. Því lengur sem ungt fólk er á heimili foreldra því líklegra er það til að fresta barneignum. Við búum þegar í samfélagi þar sem eru ýmsir hvatar til að fresta eða jafnvel sleppa barneignum. Það væri efnahagsleg vitfyrra að ýta undir slíkt.
Ungt fólk sem ekki þarf að éta núðlur og búa hjá foreldrum sínum er líklegra til að eignast börn fyrr og fleiri. Þar liggur einn af styrkleikum Íslendinga. Hér hefur ekki hægst á fólksfjölgun með sama hætti og víða í Evrópu. Þetta dregur úr því að íbúakaka samfélagsins breytist jafn harkalega og von er á. Nú þegar eru hvatar til að eignast færri börn og það seinna. Það er í sjálfu sér ekki vont en það er algjör óþarfi að ýkja og auka þá hvata.
Þá má benda á að þegar ungt fólk kaupir íbúð og býr sér til heimili þá er nú ekki eins og þessum pening sé bara kastað. Það skapar töluvert af störfum og er nokkuð örugg fjárfesting að aðstoða ungt fólk við að komast af stað út í lífið.Til hvers að fresta þessari fjárfestingu að óþörfu?
Eygló vill að fólk mennti sig hægar og geri án lána. Til hvers? Hvers vegna að mennta verkfræðing, lækni eða listamann hægar og dýrar – það er dýrara að ílengja nám – til þess eins og njóta starfskrafta þeirra skemur? Hvaða ráðmennska er það? Ráðmennska andskotans … ráðmennska Framsóknarflokksins.
Eygló talar um yfirdráttarlán til að ferja sig milli útborgana LÍN. Hvers vegna ætli það sé til staðar? Hver ætli gæti breytt því? Núverandi kerfi er einfaldlega gjöf til bankanna. Í stað þess að LÍN greiði bara út mánaðarlega og aðstoði nemendur þá er lánið eftir á. Bankarnir, sem Framsókn hatar svo innilega, fá því nemendur í skuldasöfnun, á dýrustu lánum, með kossi og slaufu frá ríkisstjórninni. Hver er lausn Eyglóar? Meiri núðlur, lengra nám og herbergi hjá mömmu og pabba.
Þessi pistill mun engu breyta. Framsóknarflokkurinn er flokkur einfeldninga og róttækra afstæðishyggusinna. Allt er bara skoðun, rök bíta ekkert á þetta lið. Heimsk og stolt af því. Þessi pistill er auðvitað bara enn eitt dæmið um ‘framsóknarhatrið’. Framsókn er hér fórnarlamb fordóma… eins og svo oft áður.
Fyrir nokkrum árum vann ég með manni sem spurði mig aftur og aftur; til hvers er Framsóknarflokkurinn til? Hann var enginn enfeldningur og vissi vel að ástæðan eru hagsmunir fárra. Spurningin var samt, hvað stendur þessi flokkur fyrir? Hver er stefnan? Hvaða hugmyndir eru grunnurinn að þessum elsta stjórnmálaflokki landsins? Ótrúlegt en satt þá er hugmyndagrunnurinn jafnaðarmennska! Í sinni séríslensku mynd varð að búa til sósíalisma fyrir borgir og sósíalisma fyrir landsbyggðina. Hvers vegna? Framsókn hafði seinna hlutverkið. Í dag hefur hann annað hlutverk. Framsókn virðist beinlínis ætlað að fleyta skrumi, rasisma og hræðslu út í samfélagið. Það þjónar nefnilega hagsmunum fárra. Hagsmunum hinna ríku.
Hvers vegna ertu þá að níðast sérstaklega á Eygló fyrst flokkurinn er svona ómögulegur í heild sinni?
Eygló er nægilega vitlaus til að útlista hugmyndir sínar. Hún hefur af einarðri fávisku útlistað húsnæðisstefnu sem miðar að því að fólk búi lengur heima hjá foreldrum sínum, sleppi lúxus eins og tölvum og símum – vissulega lúxus á níunda áratugnum en nauðsyn í dag – taki bara strætó og éti núðlur til fertugs. Búi kannski bara í gámum ef þau eru heppin – annað væru gámafordómar….
Eða er hún bara að hugsa upphátt? Kannski er bara ekkert að marka þetta eins og annað sem kemur frá þessum flokk. Segja eitt en gera svo eitthvað allt annað á meðan þau neita að hafa sagt eitt og neita fyrir að gera annað. Þvílík sturlun!
Eygló gleymir líka að á Íslandi er það ríkið sem rekur velferðina, ekki fjölskyldan. Ríkið er sterkasta stofnun samfélagsins en ekki fjölskyldan. Þótt vissulega sé fjölskyldan mikilvæg stofnun þá rekum við þetta kerfi einmitt svo að fólk fæðist ekki einfaldlega í sína samfélagsstöðu og eigi enga undakomuleið. Núverandi meirihluti hatar ríkið. Það er beinlínis ætlun þeirra að rústa því, minnka og skemma. Nú skal fjölskyldan taka við; lénsherrakerfi bændasamfélagsins endurvakið. Þeir sem fæðast ekki inn í ríka fjölskyldu geta nú átt von á að njóta slakari félagslegs stuðnings út ævina – og bjóða svo börnunum sínum upp á sama óréttlætið. Lengur í foreldrahúsum, lengur að mennta sig og skemra hlutfall ævinar til að kaupa hús og vinan fyrir elliárunum – kynslóð eftir kynslóð er svo þessi hringur endurtekinn af ‘ráðdeild’.
Þetta eru hættulega heimskulegar hugmyndir! Pólitískt rugl, efnahagsleg þvæla og einfaldlega enn ein framsóknarleiðin til að níðast á ungu fólki.
Eygló Harðardóttir verður að segja af sér fyrir þessa nýju útgáfu af flatskjárkenningunni. Það er ekki menntun ungs fólks sem þetta samfélag hefur ekki efni á. Við höfum ekki efni á að reka hagsmunaklíkuna Framsóknarflokkinn lengur.
Segðu af þér Eygló Harðardóttir!