Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Helgi Hrafn segir löggjafarvaldinu til syndanna

$
0
0

Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata flutti ræðu á Alþingi í dag sem vert er að hlýða á. Hann rekur þar sögu spænskrar konu Catherine Rojo Correa sem situr í fangelsi hér á landi fyrir fíkniefnasmygl. Ennfremur talar Helgi um birtingarmynd refsiþorstans sem einkennir viðhorf íslenskra yfirvalda til fíkniefnamála.
En hver er saga hennar þessarar konu og tilkoma þessara brota? Konan var fórnarlamb eiturlyfjasmyglara sem með harðræði og ofbeldi neyddu hana til verksins. Helgi Hrafn rekur sögu málsins í þrumandi ræðu og harmar að lögjafarvaldið á Íslandi sýni henni enga miskunn í ljósi þess hvernig brotið er til komið. Lokaorð í ræðu Helga Hrafns voru:

„Þessi dómur er ekki vegna geðþótta dómarans heldur vegna meðvitaðrar ákvörðunar löggjafarvaldsins.
Catherine átti skilið hjálp, en það mátti ekki einu sinni láta hana í friði, nei, henni þurfti að refsa. Dæmi enginn kvalara hennar nema
löggjöfina með.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283