Ég elska útivistarföt. Mér finnst þau ekki bara þægileg og flott heldur endast þau betur en flestur annar tískufatnaður. Eftir að ég eignaðist barn breyttust fatarinnkaupin þar sem góð regnkápa og skór með lágum hæl bættust í safnið svo hægt væri að fara út að ganga með dótturina óháð veðri.
Þess utan elska ég fjallgöngur og útilegur og get ekki stillt mig um að eignast reglulega góða útivistarflík. Tískan núna samanstendur af köflóttum skyrtum, jarðtóna jökkum, þykkum peysum og afslöppuðu brosi! Hér gefur á að líta nokkrar gullfallegar flíkur sem sóma sér vel í bæjarröltið á menningarnótt, útihátíðir eða haustferðir upp í bústað, tjald eða berjamó!
Sturluð stígvél:
Stígvél njóta sífellt meiri vinsælda. Má þá helst nefna hin klassísku Hunter sem fást meðal annars í Geysi og Ilse Jacobsen stígvélin. Katrín hertogaynja hefur mikið dálæti á stígvélum og hefur gert franska merkinu Le Chameau hátt undir höfði.
Góð gúmmístígvél eru klassík sem koma alltaf að góðum notum. Ekki skemmir fyrir að taka smá séns í lífinu og fá sér þau í lit!
Reffilegar regnkápur:
Regnkápur eru ekki bara nauðsynlegar í haustslappinu heldur eru þær undur fagrar og sóma sér vel við ótrúlegustu tilefni.
Cintamani selur guðdómlega fallegar kápur á börn, menn og konur. Konukápurnar koma í glaðlegum gulum og bláum. Ég hef sum sé sætt mig við að regnkápa er mikilvæg sumar- og haustflík á Íslandi.
Næs leggings:
Þægilegar leggings eru hvers manns hugljúfi. Sérstaklega við kósí ullarsokka, stígvél og góða dúnúlpu eða regnkápu. Það á að mínu mati að upphefja leggings en þessi notalega flík hefur legið undir miklum ásóknum síðustu ár – þá sérstaklega fyrir að vera hallærislega heimaflík.
Þetta eru ósanngjarnar ofsóknir þar sem smart leggings kosta fúlgu! Leggins úr stífu efni með fallegri grafík og léttum glans, eru möst í fataskápinn.
Þær eru undurfagrar, halda vel við bossann og láta jafnvel þreyttustu læri á Laugaveginum líta út fyrir að vera veðhlaupalaæri.
Hugguleg höfuðföt:
Fallegir hattar eru klassík en það fer því miður ekki öllum að ganga með hatt. Þá koma litríkar flíshúfur og bönd sterk inn en klútana má einnig má nota sem hálsklúta.
Skinneyrnabönd og húfur frá Feldi eru einnig í miklu uppáhaldi í mínum vinahóp. Hárgreiðslan er kæruleysisleg flétta eða snúður. Ahhh afslappað og næs.
Drykkurinn:
Hin fullkomni útilegudrykkur eða eins og margir kalla það; skíðakakó eru ein leið til að hita sér hratt og örugglega ef dúnúlpan dugar ekki. Þessi er æði í plastmál á útitónleikum.
1 bolli gott kakó
einfaldur Stroh (austurískt romm) – toppað með rjóma.
Ef þú vilt ekki romm er dásamlegt að setja smá appelsínusúkkulaði út í kakóið.
Dýrari týpan:
Vatteraðir jakkar hafa verið sjóðheitir síðustu ár og ekkert lát er þar á. Þeir gefa fágað útlir og sóma sér vel við nánast hvaða aðstæður sem er.
Þessi er frá Cintamani og er ofarlega á óskalistanum mínum. Þeir fást bæði í karl og kvennsniði. Rjúkandi töff!
Sjóðheitt pils:
Þá sjaldan að kjóll eða pils yljar manni á köldu íslensku sumarkvöldi! Tískan í dag er íslendingum hlið holl en fjölda fyrirtækja á borð við japanska merkið Uniqlo og Cintamani selja nú flískjóla og vatteruð pils.
Þetta kallar maðurað taka útivist upp á næsta plan! Kvenlegt, hlýtt og fallegt.
Stórt og djúsí:
Stórir djúsí treflar og peysur eru möst allt árið hér á landi en það mætti gjarnan vera meira úrval.
Ég hef helst rekist á svona peysur í Geysi og Farmersmarket.