Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á barnatónleika með tónlistarævintýrinu um Tobba túbu þar sem sögumaður er trúðurinn Barbara og einleikari á túbu Nimrod Ron.
Tónlistarævintýrið um Tobba túbu hefur notið mikilla vinsælda allt frá útgáfu þess árið 1945. Í ævintýrinu um Tobba segir frá hugrakkri túbu sem þráir það heitast að fá að leika fallegar laglínur rétt eins og flauturnar og fiðlurnar í hljómsveitinni. Ævintýrið um túbuna er margrómað og hefur verið gefið út á fjölda tungumála. Tónleikarnir eru um það bil hálftími að lengd.
Ókeypis er á tónleikana og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir en tónleikarnir hefjast klukkan 15.00 í Hörpu.
Hægt verður að sækja aðgöngumiða í miðasölu á tónleikadegi.