Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Jesús væri líklegri til að vera í Vantrú en Þjóðkirkjunni

$
0
0

Íslenska þjóðkirkjan á undir högg að sækja. Það er gott því þetta er löngu úrelt og ógeðfelld stofnun byggð á svikum, prettum og lygi. Hún smánar nafn Jesú Krists á hverjum degi með peningaeyðslu sinni en þjónar frelsarans, sem hafnaði auðsöfnun og boðaði gjafmildi og hófsemi, hafa nýútskrifaðir meira en tvöföld laun hjúkrunarfræðings, kennara eða lögreglumanns.

Mörgum gremst það að fjöldi fólks skuli hafa háar tekjur af því að bulla upp úr gamalli og úr sér genginni bók en búið er að vatnsþynna megnið af texta bókarinnar svo hún flokkist ekki sem hatursáróður gegn konum, samkynhneigðum og ýmsum stéttum þjóðfélagsins. Því góða sem eftir stendur er síðan ekki fylgt því þrátt fyrir boðskapinn þá eru mennirnir bara ekki betur skapaðir en svo að þeir eru gráðugir, bera ljúgvitni og er ómögulegt að samræma boðskap Jesú nútíma þjóðfélagi.

Allar stofnanir landsins eru fjársveltar og við þurfum hverja einustu krónu til að halda uppi samfélagi. Við þurfum heilbrigðiskerfi til að hjálpa þeim sem guð hefur af einhverjum ástæðum ákveðið að leggja mikið á. Lögreglu þurfum við til að vernda okkur því almættið er upptekið við eitthvað annað en vonandi mikilvægt. Þúsund ár eru liðin síðan hægt var að nýta biblíuna sem kennslurit og samgöngur þurfum við því aðeins guð getur verið alls staðar í einu án þess að reka allavega tvo bíla.

Þjóðkirkjan vill svo líka sitt rekstrarfé en af hverju hún þarf svona mikið er ofar mínum skilningi og hef ég samt lesið biblíuna reglulega frá barnsaldri. Ég vissi ekki að það kostaði svona mikið að vera góður og elska náungann.

En Þjóðkirkjan er gagnslaus

Það væri mun skemmtilegra að láta grínista, tónlistarfólk eða þekkta spéfugla sjá um athafnir tengdar nafngift, giftingar og jarðarfarir. Prestar almennt eru hvort sem er farnir að vera alþýðlegri og skemmtilegri, enda er leiðinlegt dottið úr tísku.

Það væri svo mikið yndislegra ef vinur brúðhjónanna sæi bara um að gefa þau saman og athafnanirnar yrðu fjölbreyttari, persónulegri og eftirminnilegri. Fermingarfræðsla er lélegt nám að öllu leyti og mun gagnlegra ungu fólki væri að fá fjármálaráðgjöf. Sunnudagaskólar kirkjunnar hafa fyrir löngu tapað fyrir barnaefni sjónvarpsstöðvanna og vikulegar guðþjónustur eru illa sóttar nema af fólki sem leiðist og á stutt eftir. Það hugsar sem svo að betra er að vera safe en sorry og mætir á ömurlega harða bekkina til að syngja þunglyndisvaldandi lög og vonar á sama tíma að þau séu ekki spiluð í himnaríki. Gamla fólkið þorir ekki öðru en að sína smá lit, svona ef guð skyldi nú vera til og fúll út í mann fyrir að hafa verið of upptekinn við að lifa til að tilbiðja hann eins og fimmta bítilinn.

Árið 1997 afhenti kirkjan ríkinu til eignar kirkjujarðir gegn því að kirkjan stæði skil á launum 138 presta og 18 starfsmanna Biskupsstofu. Enginn veit hversu mikils virði þessar jarðir voru en einhver kjánaprik samþykktu engu að síður að borga laun kirkjunar manna út í hið óendanlega. Það er ömurlegur samningur. Og nú er svo komið að ríkið getur ekki staðið við hann. Ekki frekar en að kirkjan geti staðið við það sem hún predikar.

Ríkið hefur ekki getað staðið við hann síðan eftir hrun. Eins og hjá öllum stofnunum var skorið niður hjá kirkjunni en nú er svo komið að kirkjan samþykkir ekki lengur skert framlög til sín og ætlar í hart við ríkið.

Þjónar kirkjunar, kristmenn krossmenn, á sínum forstjóralaunum og með sín forréttindi vilja nú að við gjöldum þess sem keisarans er og ætla í slag við aðrar stofnanir samfélagsins um þær örfáu krónur sem eftir eru til skiptana. Jesú væri ekki hrifinn.

Kirkjan ætlar ekki að láta niðurskurð yfir sig ganga lengur. Ríkið skuldar henni pening. Við skuldum henni pening. Og hún ætlar sér að fá þá. Þetta er andlegt Icesave í gangi hérna.

Kirkjan sankaði að sér jörðum yfir aldirnar því hræddir menn gáfu henni þær og ýmislegt annað því prestarnir sögðu þeim að það væri eina leiðin til að bjarga sálu sinni. Í dag er þetta kallað fjárkúgun.

Hvað myndi Jesús segja?

Jesús sagði sjálfur: „Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.“

Kirkjan hefur stundað hér svik og pretti í margar aldir. Með auknu menntunarstigi þjóðarinnar er fólk farið að sjá í gegnum heilaþvottinn. Við getum ekki lengur haldið uppi hempuklæddum aðli til að róa einhver örfá dauðhrædd gamalmenni.

Jesús myndi vilja að þetta fólk fengi sér heiðvirða vinnu og peningarnir færu í að hjálpa þeim sem þurfa hjálp. Kærleikurinn er einskis virði í fínum ræðum á sunnudögum í illa sóttum samkomum. Það þarf að sýna hann í verki og það er best gert með að setja peningana í eitthvað gagnlegt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283