Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Erum við sem þjóð bara sátt við að græða á eymdinni?“

$
0
0

Kristinn Hrafnsson skrifaði eftirfarandi færslu á Facebook og leyfði okkur að birta hana hér:

kristinn hrafns

 

„Landhelgisgæslan hefur sinnt verkefnum erlendis síðustu ár, meðal annars við að sinna flóttamannastraumi yfir Miðjarðarhafið. Gæslan hefur hagnast umtalsvert á þessum verkefnum (T.d. 2. milljarða hagnaður 2010 og 2011 – hreinn rekstrarhagnaður 680 milljónir króna).

Einhvern veginn hefur þessi gróði gleymst þegar rætt er um hetjulegar björgunaraðgerðir gæslumanna í Miðjarðarhafinu.

Það ætti að huga að honum þegar menn deila myndum af sjóreknum líkum barna. Það ætti að ræða þessar fjárhæðir í samhengi við þá mannúð sem stjórnvöld opinbera við ákvörðun um sýrlenskan flóttamannakvóta.

Eða erum við sem þjóð bara sátt við að græða á eymdinni?“

 

Skjáskot sem Kristinn birti úr skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landhelgisgæsluna:

11872252_10153573987332964_4448641794216892928_o

 

Við hjá Kvennablaðinu höfðum ekki gert okkur grein fyrir að það væri svo ábótasamt fyrir þjóðina að sinna björgunarstörfum en hér er skjáskot úr ársyfirliti landhelgisgæslunnar frá 2013. Það ár er varðskipið Týr 30 daga að störfum fyrir Landamærastofnun EU/Frontex og TF-SIF 130 daga að vinna fyrir sömu aðila.

Screen Shot 2015-08-29 at 10.21.33

 

Hér eru svo tekjurnar:

11948606_10153574042682964_1864059475_o

 

Samkvæmt heimlidum hefur TF-SIF  verið í það minnsta 60 daga í verkefnum fyrir FRONTEX það sem af er 2015 og Týr verður út árið samkvæmt vef Landhelgisgæslunnar en þar segir í frétt frá 22. ágúst:

„Varðskipið Týr siglir nú áleiðis til Spánar þar sem skipið mun starfa við leit, björg­un og eft­ir­lit fyr­ir Frontex, landa­mæra­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins. Í fyrstu mun skipið sinna verkefnum milli Spánar, Marokkó og Alsír en í nóvember heldur svo Týr til Ítalíu og starfar þar undan ströndum Ítalíu og Sikileyjar út árið.“

Týr var að störfum við Miðjarðarhafið frá því í desember 2014 og fram í júní 2015 samanber þessa frétt gæslunnar  frá 2.06 2015 og tekur sér því rétt tveggja mánuða frí frá störfum.

„Varðskipið Týr kom heim í dag eftir ríflega hálfs árs veru á Miðjarðarhafi við landamæragæslu og björgunarstörf á vegum Frontex, Landamærastofnunar Evrópusambandsins.“

Það má því búast við að árið 2015 verði giftusamlegt fyrir landhelgisgæsluna vegna ‘erlendra’ verkefna og ekki óvarlegt að áætla að verkefni fyrir FRONTEX skili á annan milljarð í hagnað á síðustu árum – að þessu ári meðtöldu.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283