Jóhanna – Síðasta orrustan, er heimildarmynd um Jóhönnu Sigurðardóttur og segir sögu hennar sem stjórnmálamanns. Það er saga konu í miklum karlaheimi stjórnmálanna sem verður að lokum fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra á Íslandi.
Í myndinni er fylgst náið með störfum Jóhönnu síðustu mánuði hennar í embætti og því sem gerist bak við tjöldin í Stjórnarráðinu. Fylgst er með baráttu hennar og annarra fyrir því að fá Alþing til að samþykkja nýja stjórnarskrá fyrir Ísland.
Leikstjóri myndarinnar er Björn B. Björnsson og er hann jafnframt handritshöfundur ásamt Elísabetu Ronaldsdóttur sem klippir myndina. Kvikmyndatöku annaðist Jón Karl Helgason og tónlistin er eftir Tryggva M. Baldvinsson. Myndin er framleidd af Reykjavík films.
Jóhanna – Síðasta orrustan verður frumsýnd í Bíó Paradís þann 15. október.
Frumsýningu á stiklu úr myndinni er hægt að sjá hér: