Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kate Magic með hrásúkkulaði-Masterclass og magnað námskeið

$
0
0

Heimsþekkta hráfæðidívan Kate Magic kemur aftur til Íslands í september til að halda tvö af hennar vinsælustu hráfæðinámskeiðum.

Námskeiðin eru haldin á Gló, Fákafeni en þau eru annars vegar Raw Chocolate Masterclass fyrir þá sem elska súkkulaði og vija læra að gera það hollt, gott og „raw“. Þar mun hún kenna fólki að búa til alls konar súkkulaði allt frá konfekti, trufflum að gómsætum súkkulaðikökum með ýmsu áhugaverðu „súperfæði“. Að sjálfsögðu munu námskeiðsgestir fá að borða herlegheitin.

heartchocolate

Hitt námskeiðið er Easy Gourmet Raw þar sem hráfæði verður gert einfalt og á allra færi. Ef þú hélst að hráfæði þýddi langar klukkustundir í eldhúsinu að leggja í bleyti, spíra og setja í þurrkofna þá er þetta námskeið fyrir þig. Kate mun sýna hvernig hægt er að galdra fram „gourmet“-máltíðir á engum tíma, með lítilli fyrirhöfn og kostnaði.

day5 (4 of 22) (1)

Kate hefur 25 ára reynslu af hráfæðilífsstíl, kennslu og námi. Hún hefur alið syni sína þrjá á hráfæði og vegan-mataræði og sér um vefsíðuna RawLiving.eu, sem er leiðandi síða í Evrópu í hráfæði og „súperfæði“. Hún hefur hannað yfir 20 matvörur, skrifaði metsölubækurnar Eat Smart Eat Raw, Raw Living and Raw Magic og er með námskeið og uppákomur um allan heim.

Kate elskar Ísland og hefur komið reglulega síðan 2007. Ef þú hefur komið áður á námskeið hjá henni muntu ekki vilja missa af þessu og ef þú hefur ekki séð hana áður þá er tækifærið núna, fyrir alvöru „Raw Magic“ upplifun.

Og svo er hægt að skrá sig á námskeiðin í hlekkjunum hér að ofan!

Áhugaverðar síður og myndir:

Kate á Facebook
Heimasíða Kate
Kate á Instagram


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283