Þorgerður E. Sigurðardóttir hefur verið ráðin Útvarpsleikhússtjóri. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði útvarpsmennsku, bókmennta og leiklistar. Hún er hlustendum Rásar 1 vel kunnug þar sem hún hefur verið í framvarðasveit dagskrárgerðamanna Rásar 1 síðustu ár og haft umsjón með Víðsjá og Bók vikunnar.
Þorgerður er með BA-gráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og BA-gráðu í leikmynda-og búningahönnun frá Nottingham Trent University auk þess sem hún hefur lagt stund á nám í heimilda- og fléttuþáttagerð fyrir útvarp. Nýr Útvarpsleikhússtjóri hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands í almennri bókmenntafræði og við Listaháskóla Íslands í sviðslistadeild og listkennsludeild. Hún hefur setið í dómnefnd fyrir Íslensku bókmenntaverðlaunin, verið fulltrúi Sviðslistasambands Íslands í úthlutunarnefnd vegna starfslauna listamanna, gegnt dómnefndarstörfum við val á framlagi Íslands til norrænu leikritaverðlaunanna og starfað sem leiklistar- og bókmenntagagnrýnandi.
Þorgerður hefur verið virk í menningarlífi hér heima og hróður hennar hefur borist út fyrir landsteinana. Hún hefur m.a. tekið þátt í að skapa hljóðverk fyrir Listahátíð með hljóðgönguhópnum Innra eyranu sem tekur nú þátt í Evrópuverkefninu Urban Heat.
Í starfi Útvarpsleikhússtjóra mun Þorgerður, ásamt dagskrárstjóra Rásar 1, marka Útvarpsleikhúsinu stefnu til náinnar framtíðar, huga að sóknarfærum til að efla listgreinina sjálfa og nýta þau tækifæri sem eru í sjónmáli til að vinna henni veg og ekki síst koma auga á ný.
Þorgerður tekur við starfinu af Viðari Eggertssyni þann 1. desember.
Útvarpsleikhúsið hefur verið eitt af helstu stoltum Rásar 1 og Ríkisútvarpsins. Í safni Ríkisútvarpsins eru ófáar perlur leikbókmenntanna varðveittar í flutningi okkar fremstu leikara. Þessar perlur eru endurfluttar reglulega samhliða því sem ný, fjölbreytt og framsækin verk eru frumsýnd jafnt og þétt. Viðar Eggertsson hefur stýrt Útvarpsleikhúsinu í átta ár en á þeim tíma hefur leikhúsið hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, innan lands og utan. Á síðasta ári var framhaldsleikriti fjölskyldunnar um páska bætt við vetrardagskrá Útvarpsleikhússins og í ár verður bætt við öðru framhaldsverki fjölskyldunnar, sem að þessu sinni verður Leifur óheppni eftir Maríu Reyndal. Á undanförnum árum hefur aðaláherslan verið á ný íslensk verk og hafa að jafnaði verið frumflutt jafnmörg verk eftir konur og karla. Ríkisútvarpið áformar að efla Útvarpsleikhúsið enn frekar á næstu misserum og auka samstarf við ýmsa aðila innan RÚV og utan.