Egypskur milljarðamæringur Naguib Sawiris segir að það séu engin takmörk fyrir því hversu miklum fjármunum hann sé reiðubúinn til að verja til að koma flóttafólki til hjálpar. Hann tjáði sig fyrst á Twitter þann 1. september með orðunum: „Grikkland eða Ítalía – seljið mér eyju“ og er staðráðinn í því að kaupa eina slíka fyrir flóttafólk sem nú streymir til Ítalíu og Grikklands.
Greece or Italy sell me an island,ill call its independence and host the migrants and provide jobs for them building their new country
— Naguib Sawiris (@NaguibSawiris) September 1, 2015
Hann hefur alfarið hafnað því að hugmyndin sé fráleit og segir að það sé fjöldi eyja utan við löndin tvö sem gætu borið 100.000-200.000 íbúa. Sawiris sagði í viðtali við CNN að hugmyndin væri einföld: „Þeir selja mér bara eyju, hún verður sjálfstætt ríki og ég byggi þar skjól fyrir flóttafólk. Ég byggi höfn og bryggju og ég ræð fólkið í vinnu við að byggja sér heimili, skóla, spítala, háskóla og hótel.“
Crazy idea .. Maybe but at least temporary until they can return to their countries ??!!
— Naguib Sawiris (@NaguibSawiris) September 1, 2015
Aðspurður sagði hann að þegar fram liðu stundir færi fólk heim til sín aftur ef það kysi að snúa aftur en það væri að sjálfsögðu frjálst ferða sinna og væri frjálst að búa þar áfram. Sawiris er viðskiptajöfur í sínu heimalandi og virtur stjórnmálamaður. CNN hafði ekki nú í kvöld fengið viðbrögð frá grískum eða ítölskum stjórnvöldum við þessari óvenjulegu bón.