Fyrirtaka í sakamáli gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni vegna andláts Sigurðar Hólms Sigurðssonar, samfanga þeirra á Litla-Hrauni í maí 2012, fór fram í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Aðalmeðferð málsins fer fram í október næstkomandi, rúmlega þremur árum eftir að þeir Annþór og Börkur voru ákærðir.
Yfirmatsmenn telja ólíklegt að Sigurður Hólm hafi látist vegna barsmíða af hendi samfanga sinna. Fangelsismálastofnun veitti Sigurði ekki þá læknisaðstoð sem stofnuninni bar skylda að veita honum. Sigurður var undir miklum áhrifum vímuefna við komuna á Litla-Hraun og var því ákveðið að hafa hann undir eftirliti fangavarða í einangrun fyrstu nóttina í fangelsinu. Hann var ekki skoðaður af lækni við komuna í fangelsið líkt og lög um fullnustu refsinga gera ráð fyrir. Þess í stað var hringt í lækni sem ávísaði svokölluðum R-skammti í gegnum síma. R-skammtur er það sem fangaverðir kalla rónalyf. Enginn staðlaður lyfjaskammtur er til með þessu heiti. Þetta virðist því vera slangur innan stofnunarinnar. Læknar sem Kvennablaðið hefur rætt við hafa allir lýst andúð á hugtakinu og ekki hefur tekist að fá skýringu á því hvers vegna slíkur skammtur var gefinn í gegnum síma.
Í nýlegri umfjöllun er bent á að þrátt fyrir að ekki hafi tekist að sýna fram á að Sigurður hafi verið myrtur og að ekkert í rannsóknargögnum staðfesti þátt Annþórs og Barkar í andlátinu hafi lögregla í raun einskorðað alla rannsókn við þá útkomu.
Þá fjallaði Kvennablaðið ítarlega um ítrekuð mannréttindabrot gegn hinum grunuðu og hvernig þeim hefur verið vikið frá vegna skynjun lögreglu í stað hlutlægs mats á sönnunum.
Umboðsmaður hefur fjallað um lögmæti vistunar Annþórs og Barkar á öryggisgangi. Fangelsismálayfirvöld tóku þá ákvörðun að vista Annþór og Börk á öryggisganginum í kjölfar þess að þeir fengu réttarstöðu grunaðra vegna rannsóknar lögreglu á andláti Sigurðar. Í ákvörðun þeirra kemur fram að ekki þyki forsvaranlegt að vista þá meðal annara fanga þar sem þeir voru álitnir hættulegir samföngum sínum. Ákvörðunin um vistunina virðist þó ekki eiga sér stoð í lögum, þetta kemur fram í gögnum málsins sem Kvennablaðið hefur undir höndum.
Þá greindi Kvennablaðið frá viðbrögðum innanríkisráðuneytisins vegna ummæla Páls Winkel fangelsismálastjóra í Fréttablaðinu þar sem hann heitir því að halda réttindum Annþórs og Barkar í „löglegu lágmarki.“ Þrátt fyrir að Páll hafi þar tjáð sig með beinum hætti um málefni skjólstæðinga sinna taldi innanríkisráðuneytið ummælin almenns eðlis.