Opnað hefur verið fyrir undirskriftasöfnunina „Setjum lög um heimilisofbeldi“, en eins og staðan er í dag eru engin sérákvæði í lögum um þann málaflokk. Undirskriftasöfnunin á sér stað á netinu og hafa þegar yfir 2000 manns skrifað undir, þar á meðal má sjá Pál Óskar Hjálmtýsson, Bergljótu Arnalds, Guðrúnu Evu Mínervudóttir og Bubba Morthens. Vefslóðin fyrir þá sem vilja skrifa undir er að finna hér.
Áskorunin er svohljóðandi:
ÁSKORUN TIL STJÓRNVALDA AÐ SETJA SÉRLÖG UM HEIMILISOFBELDI
Á Íslandi er ekki að finna lagaákvæði sem taka sérstaklega á ofbeldi sem beitt er í nánum samböndum (heimilisofbeldi) heldur eru ákvæði almennra hegningarlaga látin nægja. Sem dæmi má nefna að sök vegna heimilisofbeldis fyrnist eftir sömu reglum og gilda um ofbeldi milli ókunnugra. Þar með er ekki tekið tillit til þess hve þungbært er að kæra ofbeldisverk maka til lögreglu og að erfitt sé að gera það á meðan á sambandinu stendur. Þá er barn sem horfir upp á foreldri sitt beitt ofbeldi ekki skilgreint sem þolandi afbrots í gildandi lögum.
Við, undirrituð, skorum á yfirvöld að endurskoða í heild sinni lög og viðurlög er varða heimilisofbeldi, með það fyrir augum að búa til heilsteypta og skýra löggjöf, annaðhvort með sérkafla í hegningarlög eða með sérstökum lögum, sem taka á öllum þáttum er snúa að heimilisofbeldi. Þannig verði löggjöf bætt, alvarleiki þessara brota viðurkenndur og fyrir alvöru unnið að því að Ísland verði land þar sem heimilisofbeldi og ofbeldi milli náinna einstaklinga er ekki liðið.