Eymundur L. Eymundsson skrifar;
Lítið sjálfstraust og sjálfsvirðing, taugakerfið brothætt, skömm, sjálfsvígshugsanir, sjálfshatur, reiði, félagsleg einangrun og að vera uppstökkur eru oft fylgifiskar geðraskana. Einnig eru geðraskanir oft undirrót þess að fólk fer að misnota vímuefni. Þessar staðreyndir verðum við að viðurkenna í samfélaginu og taka á þeim en ekki fela.
Ég var mjög lítill í mér og gekk erfiðlega að læra og það þróaðist yfir í félagskvíða um fermingaraldurinn. Þá var ég farinn að fela mína líðan með trúðslátum. Ég stundaði samt íþróttir sem veitti mér félagsskap og ég var samþykktur af vinahópnum. Ég náði að klára mína grunnskólagöngu með þokkalegri einkunn en um það leyti var félagsfælni mín algjörlega farin að stjórna mér.
Það að opna mig um þessi mál var langt í frá að vera auðvelt þegar ég kom til Akureyrar. Hef verið í felum með mín andlegu veikindi mest allt mitt líf. Maður vissi ekki hvað þetta var og með því að leika trúð með mikið myrkur í sálinni voru sjálfsvígshugsanir nær daglegt brauð hjá manni. Eðlilega gat ég ekki ætlast til að þeir sem þekktu mig hafi trúað að mér hafi liðið svona þar sem ég hef leikið þetta svona vel. Það sem skiptir mestu máli er að ég lifði þetta af og hef nýtt mér alla þá hjálp sem ég hef fengið á síðustu 10 árum og hún er ekkert lítil. Ég er með master í kvíða, félagsfælni og þunglyndi og þykir vænt um það í dag þar sem ég get nýtt þetta myrkur til góðs í dag.
Það að koma úr felum getur bjargað mörgum og sérstaklega þér og þinni fjölskyldu að eignast betra líf. Af þeim sem glíma við geðraskanir á Íslandi eru 3 til 4 sem taka sitt eigið líf í hverjum mánuði. Lífið er til þess að lifa því og stundum þurfum við aðstoð og með sameiginlegu átaki er ýmislegt hægt.
Grófin geðverndarmiðstöð á Akureyri
Samvinna með forvarnarfulltrúum Akureyrarbæjar og Grófarinnar er orðin að veruleika. Við erum byrjuð að fræða kennara og starfsfólk grunnskólanna og óhætt að segja að okkur hefur verið vel tekið enda ekki síður mikilvægt að fræða fullorðna þar sem við höfum oft svo ranga mynd af geðveiki.
Ég hélt sjálfur fyrir 10 árum að geðveiki væri eins og sýnt er í bíómyndum sem gefa í skyn fólk í spennitreyu eða útúr lyfjaðir samanber Engla alheimsins og Gaukshreiðrið. Oft eru myndir textaðar vitlaust þar sem geðveiki er bætt inn til að fólk grípi að svona sé geðveiki og ég verð að segja að maður er orðinn virkilega þreyttur á þessu rugli sem þeir þýða.
Það eru minni líkur að maður með geðræn veikindi geri eitthvað af sér og rannsóknir sýna það svart á hvítu. Við munum fara í alla 9. bekki og framhaldsskólana með fræðslu auk þess sem foreldrum 9. bekkjar mun bjóðast fræðsla sem við vonum að þau muni nýta sér þegar þar að kemur. Það skiptir máli að nýta sér reynslu fólks með geðraskanir í bata og fagmanna til að fræða á jafningjagrunni.
Grófin er staðsett í Hafnarstræti 95., 4. hæð, Akureyri fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni. Opið er alla virka daga frá 10.00–16.00.