Rússar freistuðu þess fyrir rúmlega þremur árum að ná friðarsamningum í Sýrlandi. Samkvæmt samningsdrögunum átti Assad Sýrlandsforseti að stíga til hliðar, vesturlönd að hætta vopnasendingum til andspyrnuhreyfinga í Sýrlandi, og að þegar yrðu hafnar friðarviðræður við andstæðinga Assads. Frá þessu er sagt í The Guardian og haft eftir Martti Ahtisaari, sem átti fundi um tillögurnar með fastafulltrúum í Öryggisráðinu. Ahtisaari er handhafi friðarverðlauna Nóbels og fyrrum forseti Finnlands.
Að sögn Ahtisaari sýndu Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar tillögum Rússa lítinn áhuga, þar sem fulltrúar ríkjanna voru sannfærðir um að dagar Assads væru taldir hvort sem væri. Fastafulltrui Rússa hjá SÞ, Vitaly Churkin, lagði tillögur Rússa fyrir Athisaari í þeirri von að leysa mætti vanda Sýrlands eftir krókaleiðum. Churkin hefur hvorki staðfest né neitað frásögn Ahtisaari.
Eins og allir vita reyndist Assad lífseigari en nokkurn óraði fyrir og situr enn á forsetastóli í Sýrlandi þó landið logi stafna á milli. „Við hefðum átt að koma í veg fyrir vandann, því straumur flóttamanna inn í Evrópulöndin er heimatilbúinn“ segir Ahtisaari. „Ég sé engan valkost annan en að taka vel á móti þessu fólki. Við erum að borga skuld sem sem við stofnuðum til sjálf.“