Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Dóttir Woody Allen skrifar opið bréf um misnotkun

$
0
0

New York Times birti í gær opið bréf Dylan Farrow, dóttur Miu Farrow og Woody Allen. Í bréfinu segir Dylan frá meintri misnotkun sem hún á að hafa orðið fyrir af hendi föður síns þegar hún var barn. Bréfið er afar opinskátt og beinir Dylan ekki síst orðum sínum til Draumaverksmiðjunnar í Hollywood. Hún segir meðal annars:

Í síðustu viku var Woody Allen tilnefndur til óskarsverðlauna enn á ný. En í þetta sinn neita ég að brotna saman.

Dylon Farrow Ljósmynd eftir Frances Silver

Dylon Farrow Ljósmynd eftir Frances Silver

Hér er bréfið í heild sinni í þýðingu Kvennablaðsins.

 

Opið bréf frá Dylan Farrow

Hver er uppáhalds Woody Allen-myndin þín? Áður en þú svarar, skaltu vita þetta.

Þegar ég var sjö ára leiddi Woody Allen mig upp á dimmt háaloft á annarri hæð hússins sem við bjuggum í. Hann sagði mér að leggjast á magann og leika mér með rafmagnsleikfangalest bróður míns. Síðan misnotaði hann mig kynferðislega.

Hann talaði við mig meðan á því stóð, hvíslaði því að mér að ég væri góð stelpa, að þetta væri leyndarmálið okkar, lofaði mér að við skyldum fara til Parísar og að ég yrði stjarna í kvikmyndunum hans. Ég hafði ekki augun af lestinni, og hvernig hún ferðaðist hring eftir hring um háaloftið.  Allt fram á þennan dag á ég bágt með að horfa á leikfangalestir.

Frá því að ég man eftir mér gerði pabbi hluti við mig sem mér líkaði ekki. Ég kunni ekki við hvernig hann tók mig frá systkinum mínum, mömmu og vinum mínum svo að hann hefði mig útaf fyrir sig. Mér fannst óþægilegt þegar hann stakk þumalfingrinum upp í munninn á mér. Mér fannst óþægilegt þegar ég þurfti að fara upp í rúm til hans þegar hann var á nærfötunum. Mér fannst óþægilegt þegar hann lagði höfuðið í nakta kjöltu mína og andaði að sér og frá.

Ég faldi mig undir rúmum eða læsti mig inni á baðherbergi en hann fann mig alltaf. Þetta gerðist svo oft, svo reglulega og var svo vandlega falið fyrir mömmu sem hefði varið mig ef hún hefði aðeins vitað, að ég hélt að þetta væri eðlilegt. Ég hélt að svona sýndu feður dætrum umhyggju sína. En það sem gerðist á háaloftinu var öðruvísi. Ég gat ekki haldið þessu leyndu lengur.

Þegar ég spurði mömmu hvort pabbi hennar hefði gert það sama við hana og Woody Allen gerði við mig, þá vissi ég í alvöru ekki svarið. Mér datt heldur ekki hug að spurningin hefði þvílíkar afleiðingar. Ég vissi ekki að pabbi minn myndi nýta sér kynferðislegt samband sitt við systur mína til að fela misnotkunina sem hann beitti mig. Ég vissi ekki að hann myndi brigsla móður minni um það að hafa komið því inn hjá mér að hafa verið misnotuð og kalla hana lygara fyrir að halda uppi vörnum fyrir mig. Ég vissi ekki að ég þyrfti að endursegja sögu mína, aftur og aftur fyrir nýjum og nýjum læknum, að ég yrði beitt þrýstingi til að sjá hvort ég myndi játa á mig lygi og það að ég væri þátttakandi í skilnaðarmáli sem ég hafði engar forsendur til að skilja.

Í eitt skipti sagði mamma við mig að ég kæmist ekki í nokkurn vanda ef ég væri að ljúga – ég mætti breyta framburði mínum. Ég gat það ekki. Þetta var allt satt. En sögur um misnotkun eiga lítinn séns gagnvart þeim valdamiklu. Þetta voru sérfræðingar sem voru fáanlegir til að véfengja trúverðugleika minn. Þetta voru læknar sem voru fáanlegir til að leggja sálfræðigildrur fyrir barn sem hafði orðið fyrir misnotkun.

Eftir að pabba var meinaður réttur til heimsókna að undangengnum málaferlum ákvað mamma að leggja ekki fram kæru þrátt fyrir að vera með sterkt mál samkvæmt lögum í Connecticut-ríki vegna, og þetta er orðrétt haft eftir saksóknara: “vegna þess hve fórnarlambið er ungt og viðkvæmt”.

Woody Allen var aldrei dæmdur fyrir glæp. Að hann skyldi komast upp með það sem hann gerði mér kvaldi mig allan uppvöxtinn. Ég hafði samvikubit yfir því að það væri mér að kenna að hann fengi að umgangast litlar stúlkur. Ég hræddist snertingu karlmanna. Ég þróaði með mér átröskun. Ég stundaði það að skera mig. Afstaða Hollywood gerði illt verra. Allir nema örfáir einstakir (hetjurnar mínar) kusu að horfa í aðra átt. Flestum fannst auðveldara að láta hann njóta vafans og segja; “Hver veit svosem hvað gerðist?” og láta eins og ekkert hefði gerst. Leikarar mærðu hann á kvikmyndaverðlaunahátíðum. Sjónvarpsstöðvar buðu honum í viðtöl. Gagnrýnendur birtu umsagnir í tímaritum. Í hvert sinn sem ég sá andlit kvalara míns – á veggspjaldi, á bol, í sjónvarpi, gat ég með naumindum falið vanlíðan mína þar til að ég gat komist eitthvert þar sem ég var ein og gat brotnað saman.

Í síðustu viku var Woody Allen tilnefndur til óskarsverðlauna enn á ný. En í þetta sinn neita ég að brotna saman. Allt of lengi hefur velþóknununin á Woody Allen verið mætt með minni þögn. Ég tók þessu sem persónulegum skilaboðum eins og að viðurkenningarnar og verðlaunin væru sérlega til þess ætluð að þagga niður í mér. En fórnarlömb kynferðisofbeldis sem hafa verið í sambandi við mig og hafa stutt mig og deilt með mér ótta sínum við að segja sannleikann, að vera kölluð lygarar, að vera sagt að endurminningar þeirra séu ekki sannar – gefa mér ástæðu til að þegja ekki, þótt það verði aðeins til þess að aðrir viti að þeir þurfa ekki að þegja lengur.

Í dag finnst mér ég vera heppin. Ég er hamingjusamlega gift. Ég nýt stuðnings minna dásamlegu bræðra og systra. Ég á móður sem fann hjá sér gríðarlegan styrk til að styðja okkur og bjarga okkur frá þeirri ringulreið sem kynferðisglæpamaður skapaði á heimili okkar.

En aðrir eru enn hræddir, viðkvæmir og skortir kjark til að segja sannleikann.
Skilaboðin sem koma frá Hollywood skipta þá aðila máli.

Hvað ef þetta hefði verið barnið þitt, Cate Blanchett? Louis CK? Alec Baldwin? Hvað ef þetta hefði verið þú, Emma Stone? Eða þú, Scarlett Johansson? Þú þekktir mig þegar ég var lítil Diane Keaton. Ertu búin að gleyma mér?

Woody Allen er lifandi sönnun þess á hvern hátt samfélagið bregst þeim sem hafa þolað kynferðislega misnotkun og ofbeldi.

Sjáið fyrir ykkur að sjö ára dóttir ykkar sé leidd upp á háaloft af Woody Allen.
Ímyndið ykkur að hún fyllist velgju í hvert sinn sem hann er nefndur á nafn.
Ímyndið ykkur heim sem hyllir kvalara hennar.
Sjáið þið þetta fyrir ykkur? Hver er uppáhalds Woody Allen-myndin ykkar, núna?

Ljósmynd af vef The Guardian 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283