Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Munum þá sem gleyma : Alzheimersdagurinn er í dag!

$
0
0

„Hvað er að frétta af heilanum?“

Árlega er alþjóðlega Alzheimersdagsins 21. september minnst um heim allan. FAAS félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúkra og annarra skyldra sjúkdóma) mun í tilefni dagsins standa fyrir málstofu á Grand Hóteli mánudaginn 21. september 2015 kl. 17:00 -19:00 þar sem skyggnst verður inn í heilann og leitað frétta af því sem er að gerast þar. Málstofan ber heitið „Hvað er að frétta af heilanum?“

Dagskrá:
Ragnhildur Þóra Káradóttir, doktor í taugalífeðlisfræði er einn virtasti vísindamaður landsins á sviði rannsókna á taugasjúkdómum. Hún rekur rannsóknarstofu í Cambridge og er í teymishópi fremstu vísindamanna af yngri kynslóðinni í Evrópu.

Kári Stefánsson, vísindamaður og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir fjallar um snemmgreiningu Alzheimerssjúkdómsins

Ari Eldjárn, uppistandari

Umræður og fyrirlesarar munu svara fyrirspurnum.
Málstofustjóri verður Guðlaugur Þór Þórðarson

Allir eru velkomnir, ókeypis aðgangur.

– Munum þá sem gleyma –

 

FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúkra og annarra skyldra sjúkdóma var stofnað árið 1985. Markmið félagsins er m.a. að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna, efla samvinnu og samheldni aðstandenda m.a. með fræðslufundum og útgáfustarfsemi og auka skilning stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim vandamálum sem þessir einstaklingar og aðstandendur þeirra eiga við að etja. Alzheimerssamtökin starfa um allt land.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283