Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Vertu þú sjálf

$
0
0

Sylvía Briem skrifar:

Ég held að ungar stelpur í dag séu að leita meira og meira eftir efnislegri hamingju sem erfitt er að fanga, hvað þá að hún veiti lífsfyllingu.  Þær reyna að finna hamingjuna í viðurkenningu frá öðrum en ættu frekar að leita inná við. Mér finnst mikil pressa á ungar konur í dag að fara eftir ákveðnum stöðlum. Það er eins og það sé til eitthvað form hérna á Íslandi sem að allar konur verða að „fitta inní“ og ef þú gerir það ekki, þá fer fólk að spyrja afhverju?

Við erum öll misjöfn og þess vegna mjög erfitt fyrir okkur að reyna að vera eins og aðrir, en það er eins og það sé búið að ákveða  – að við þurfum að vera svona eða hinsegin til að vera viðurkennd.

Æðsta þörf mannsins er að finnast hann vera mikilvægur og þess vegna erum við mörg að reyna að finna þetta samfélagslega rétta form til að passa í til að uppfylla þær kröfur. Það sem mér finnst vera mikilvægt fyrir ungar konur í dag er að þær geti staðið uppréttar og hugsað „ég er ég sjálf, ég er nóg.“

Ég man sjálf þegar ég var ung í tilvistarkreppunni að reyna að átta mig á sjálfri mér þá leitaðist ég eftir því í umhverfinu hvað það var sem ég þurfti að gera til að vera samþykkt. Ef ég gæti gefið sjálfri mér ráð á þessum aldri myndi ég örugglega segja við mig „Sylvia þú ert nóg, vertu þú sjálf.“

Ég hef verið að fara í grunn- og framhaldskóla á höfuðborgarsvæðinu með fyrirlestur sem að ég bjó til um sjálfsmynd ungra stúlkna. Aðallega vegna þess að ég sé mig í þeim og finn að þetta brennur mikið á mér, ég vildi að einhver hefði sagt þessa hluti við mig.

Svo hugsa ég núna, ef ég væri að alast upp í þessum hraða í dag og kringum alla þessa samfélagsmiðla þá veit ég ekki hvar ég stæði. Pressan kemur beint í símann til þín. Það eru mynstrin á Instagram, Facebook eða Snapchat. Ég sé að það eru alltof margar ungur stúlkur í basli með að reyna feta í einhver fótspor sem að kannski henta þeim ekki en þeim finnst þær þurfa að gera það því það er svo hipp og kúl.

Þegar stelpunámskeið Dale Carnegie kom upp þá varð ég ótrúlega spennt, aðallega vegna þess að ég veit hvað getur gerst á svona námskeiði og hvað þá þegar það er stór hópur af stelpum sem eru að vinna að því að verða þær sjálfar. Mér finnst eins og ég sé að fara útskrifa stóran hóp af stelpum sem að treysta á sig og þora að láta ljós sitt skína á eigin forsendum. Ég gæti í rauninni ekki beðið um meira. Mér finnst frábært að fá að vera partur af slíku starfi.

Hægt er að skrá sig hér á ókeypis fyrirlesturinn „Hvernig erum við besta útgáfan af sjálfum okkur?“ sem er haldin þriðjudaginn 22. september kl. 18-19


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283