Gunnar Már Kamban er einn vinsælasti líkamsræktarþjálfari landsins og hefur skrifað fjölda vinsælla bóka um breyttan lífstíl. Hann hefur samviskusamlega borið út fagnaðarerindið um sykurlaust líf undan farin ár.
Fyrr á árinu gaf hann út bókina Hættu að borða sykur sem fékk vægast sagt trylltar viðtökur! Getur verið að þrátt fyrir allt þetta sykurát séu Íslendingar tilbúnir að horfast í augu við vandann og láta sykurvímuna renna af sér?
Gunnar segist hafa fulla trú á að þjóðin sé að vakna til vitundar og bendir á hversu mikilvægt það sé að hrista af sér sykurslenið.
„Augljósu ástæðurnar fyrir því að þú ættir að hætta að borða sykur eru lífshættulegir sjúkdómar á borð við sykursýki II og hjartasjúkdómar en það að slaufa sykrinum stóreykur líkurnar á að þú sleppir við þessa banvænu sjúkdóma. Síðan er það auðvitað háþrýstingur og þyngdin en sykur getur hæglega hindrað það einn og óstuddur að þú náir þyngdarmarkmiðum þínum,“ segir Gunnar sem sjálfur er mikill sælkeri og því kom lítil annað til greina en að læra að borða dásamlega góðan mat – án sykurs.
Sykurinn leynist nefnilega víða og við þurfum mörg hver að taka okkur á, læra að vanda valið við matargerð og setja neyslu í samhengi við þarfir.
„Við Íslendingar erum aaaalveg að verða best í heimi að borða sykur. Við erum ljósárum á undan frændum okkar á norðurlöndunum og erum að nálgast það að vera á pari við Bandaríkjamenn. Hver fullorðinn Íslendingur borðar yfir kíló af sykri á viku. Það eru yfir 52 kg á ári og til að átta sig betur á magninu er gott að sjá þetta fyrir sér í teskeiðum en við erum að borða 200 teskeiðar á viku af sykri. Þetta er hvorki prent né reiknivilla, þetta eru 200 teskeiðar á viku,“ segir Gunnar og deilir með okkur 10 ástæðum fyrir því að þú ættir að hætta eða minnka sykurát!
1. Að hætta að borða sykur MUN minnka þá upphæð sem þú eyðir í mat. Sykraðar vörur eru nefnilega ekki ódýrar vörur þó fyrirtækin sem setja hann í matinn okkar virðist vera að fá hann ókeypis miðað við magnið sem er dælt í hann. Með því að kaupa nokkrar vörur sem þú notar aftur og aftur og elda mat í stærri skömmtum til að hjálpa til við skipulag ertu að spara krónurnar. Taktu það saman í huganum hvað þú ert að eyða á mánuði í sykraðar vörur…..úpps!
2. Að hætta að kaupa sælgæti og sykraða drykki er sennilega stærsti sparnaðurinn. Gos, orkudrykkir, sykraðir kaffidrykkir og sérstaklega safar eru ekki ókeypis og ef þú ert að kaupa þessar vörur daglega ertu komin í bullandi sparnað og gætir verið á leiðinni til Kanarí með ömmu þinni og afa um jólin. Það er meira af sykri í Frappochino en gosi og „heilsu“ múffan þín með hrásykrinum og agave sýrópinu inniheldur sama magn af sykri og Snickers.
3. Með því að hætta í sykri ertu líka að sneiða fram hjá vörum sem innihalda ekki bara sykur heldur líka önnur óæskilega efni sem notuð eru í matvæli. Bestu vinir sykurs eru nefnilega allir í sama klúbbnum, bindi, þykkingar og fylliefnaklúbbnum BÞF. Þetta eru gaurar eins og hveiti, kartöflumjöl, frúktósi, sýróp, maíssterkja, glúkósi og fleiri og þeir eiga það allir sameiginlegt að vera oft í miklu magni í vörum sem innihalda mikið magn sykurs.
4. Sykur á yfir 50 frændur sem eru allir jafnslæmir og hann Matvælaframleiðendur eru ekki fæddir í gær og vita nákvæmlega hvað gerist ef þeir breyta nafninu á sykri eða umorða þetta til dæmis í…. þessi vara inniheldur einsykur og tvísykrur!!! Einmitt. Ef þú ert ekki prófessor í næringarfræði er líklegt að þú vitir ekki hvað í ósköpunum hvað það þýðir en að sjá merkingar eins og 100% náttúruleg og engin viðbættur hvítur sykur eru frasar sem hljóma vel og við kaupum vöruna, ekki flókin fræði. Þó varan innihaldi ekki hvítan viðbættan sykur eru flestar aðrar sykurtegundir á pari við hann og það eru yfir 50 nöfn yfir sykurtegundir sem eru oft notaðar í stað hvíts sykurs en eru ekkert skárri nema síður sé. Hérna eru þær helstu. - Sýróp - Hrásykur - Maltsýróp - Agave - Frúktósi - Brúnn sykur - Hunang - Súkrósi (hvítur sykur) - Dextrósi - Molasses - Kornsýróp - Ávaxtasafi - Glúkósi - Ávaxtaþykkni - High fructose corn syrup .
5. Þegar þú ert ekki að borða sykraðar vörur einfaldar það gríðarlega matarinnkaupin. Það eru nefnilega ekki nema svona 2-3 gangar í flestum matvöruverslunum sem innihalda vörur sem innihalda ekki sykur. Þú verslar ferskar hrávörur sem eru lifandi og eru næringarríkustu vörurnar í allri búðinni og gefa þér alla þá næringu sem þú þarft og meira til. Nú gerirðu innkaupin á mettíma því þú hættir að stoppa fyrir framan sykurhlöðnu rekkana.
6. Uppgötvaðu nýja hluti sem gera bragðlaukana glaða. Þú getur eytt tímanum sem þú sparaðir í stórmarkaðinum í að prófa aldeilis splunkunýjar og meiriháttar spennandi grænmetisuppskriftir eins og blómkálspoppkorn, brokkólískinn með osti og sýrðum rjóma, avókadófranskar, kúrbítspasta, hnúðkálsfranskar, spínatpizzu og kálflögur. Nöfnin eru kannski framandi en næringin og bragðið….maður lifandi!
7. Þú þarft ekki nema 15-20 mínútur á dag í matreiðslu Við það að hætta að kaupa tilbúinn mat þarftu að að fara að elda aftur frá grunni en engar áhyggjur. Það er engin ástæða til að vera að eyða meira en 20 mínútum í eldhúsinu þótt þú sért að elda hollan og næringarríkan mat sem lætur þér líða vel á eftir að utan sem innan og veldur því að þig langar síður í eitthvað sætt eftir kvöldmat. Þú situr í sófanum eftir matinn og klórar þér í hausnum yfir því af hverju þig langar út í göngutúr en ekki í hlaup og súkkulaði og spyrð hvernig þetta sé mögulegt. Trikkið er einfaldlega rétt samsettur matur með góðum fitum, próteingjöfum og trefjaríkum kolvetnum sem fylla þig og metta án þess að valda blóðsykursveiflum og þar með er sykurlöngunin bye bye…
8. Manstu þegar ÞÚ stjórnaðir en ekki sykurinn? Ég held að allir í hinum vestræna heimi hafi einhverntíma misst stjórnina á sykurneyslunni og það er ekki gaman að missa stjórnina á sinni eigin skútu. Það er sannað mál að sykur virkar NÁKVÆMLEGA eins og önnur fíkniefni. Við borðum sykur þegar við erum glöð, þegar við erum leið, þegar við erum að skemmta okkur meðal fólks, þegar við erum í depurð, þegar við erum veik, þegar við erum særð, þegar við erum undir álag, þegar við erum að fagna og svo framvegis og framvegis. Sykurneysla er TILFINNINGATENGD og það er gríðarlega mikilvægt að skilja. Þegar því er náð og við náum að vinna þetta með andlegu hliðinni uppgötvar þú að það er algjörlega hægt að hætta að borða sykur. Þú getur tekið stjórnina aftur sama hversu lengi eða illa þú hefur villst af leið.
9. Líkamlega og andleg líðan er nátengd og þær er hægt að bæta stórkostlega þegar þú hættir að borða sykur. Að vakna með jákvæðni og orku til að takast á við nýjan dag er ekki sjálfgefið ef þú borðar sykur. Með því að hætta í sykri og velja réttan mat borðar þú beinlínis í þig jákvæðni, áræðni, orku, bjartsýni og þor alveg eins og þú getur borðað þig í þunglyndi, leti, framtaksleysi, depurð og almenna vanlíðan. Matur skiptir gríðarlegu máli og er það stöff sem hefur hvað MEST áhrif á hormónakerfi okkar sem stjórnar ÖLLUM þeim tilfinningum og líðan sem hérna er upptalin.
10. Þú ert að leggja inn á framtíðarreikningin og ekki bara á einn veg heldur tvo. Það er nú ljóst að um 60-70% af öllu því fé sem fer í að reka heilbrigiðiskerfið hérna á Íslandi og víðast í hinum vestræna heimi fer í meðferð á lífsstílstengdum sjúkdómum. Sjúkdóma sem við erum sjálf að valda okkur með þeim óholla lífsstíl sem við erum að velja okkur. Rangt fæðuval og sykurneysla er risastór hluti af þessari mynd. Með því að hætta í sykri og þar með velja hollari lífsstíl erum við ekki bara að bæta birtu í okkar eigin framtíð heldur líka afkomenda okkar sem þurfa mögulega ekki að standa strauminn af þessum himinháa kostnaði og buguðu heilbrigðiskerfi. Fyrir áhugasama má nálgast frekari upplýsingar um sykurlaust líferni inn á habs.is