Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ég treysti mér ekki til að eignast barnið – mér var nauðgað #ShoutYourAbortion

$
0
0

Um síðustu helgi fór af stað herferð á Twitter að undirlagi rithöfundanna Ameliu Bonow and Lindy West með það að augnamiði að breyta viðhorfum fólks til fóstureyðinga og opna umræðuna um það val sem konur með réttu hafa til að ákveða hvort þær vilja ganga með börn.

Mikil skömm og leynd fylgir oft fóstureyðingum og vilja rithöfundarnir með átakinu styðja konur til þess að taka ákvarðanir um barneignir óháð áliti og þrýstingi frá öðrum.

Öflug samtök í bandaríkjunum berjast gegn fóstureyðingum og hafa samtök sem styðja að fólk skipuleggi barneignir sínar, svo sem Planned Parenthood, sætt mikilli gagnrýni vestanhafs.

Herferðin fer fram á Twitter undir myllumerkinu #ShoutYourAbortion og nú þegar hafa konur í hundruðatali deilt sögum sínum og ástæðum þess að þær völdu heldur að fara í fóstureyðingu en að eignast barn.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283