Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Dalai Lama telur lítið gagn í konum ef þær eru ekki mjög fríðar

$
0
0

Í viðtali við BBC sem birtist í dag þann 22 september afhjúpaði Dalai Lama heldur and-andleg viðhorf til kvenfólks. Dalai Lama er í níu daga heimsókn í London að hvetja fólk til þess að sýna meiri samhygð og tillitssemi sem að hans sögn gerir okkur hamingjusamari. Viðtalið er að mestum hluta um flóttamannavandann og viðhorf fólks til múslima og Dalai Lama hvetur Evrópusambandsríkin til að vísa flóttafólki ekki á dyr bara vegna þess að það sé múslimatrúar. Það er nú gott hjá honum og vonandi að einhver hlusti á hann.

Ef arftaki minn verður kona þá verður hún að vera mjög aðlaðandi, annars er hún ekki til mikils gagns.

Í viðtalinu sem fréttamaðurinn Clive Myrie stýrir koma fram eins og áður sagði heldur undarleg viðhorf Dalai Lama til kvenfólks en Clive spyr þennan andlega leiðtoga hvort arftaki hans gæti orðið kvenmaður. Dalai Lama játar því og segist áður hafa sagt að kona gæti vel orðið arftaki hans. Konur séu ‘líffræðilega’ betur til þess fallnar að sýna ástúð en svo segir hann að sú kona yrði að vera falleg.

Clive hváir og spyr hvort hann sé ekki að grínast og Dalai Lama neitar því og ítrekar að arftakinn, ef um konu yrði að ræða, verði að vera falleg og bætir við „annars yrði hún ekki til mikils gagns“.

Hér er samtalið:

DL: “Today in a more troubled world, I think females should take more important roles, and then I told that reporter, if a female Dalai Lama comes, their face should be very attractive.”

CM: “So you can only have a female Dalai Lama if they’re attractive? Is that what you’re saying?”

DL: “I mean if female Dalai Lama come, then that female must be very attractive, otherwise not much use.”

CM: “You’re joking, I’m assuming,” “Or you’re not joking?”

DL “No. True!”

Umræðan um kvenfólk hefst á mínútu 5:00


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283