Kristinn Hrafnsson skrifaði eftirfarandi á Facebooksíðu sína í gær og við deilum því hér:
Í miðju gosi í Eyjafjallajökli 2010 tókst mér og félögunum að skáskjóta okkur með flugi til Sviss á alþjóðaráðstefnu 600 blaðamanna. Flestir gestanna komust, þrátt fyrir að annasamasta lofthelgi heimsins væri nánast lokuð útaf öskuskýjum. Gestgjafarnir minntust á þetta ástand í opnunarræðu og af alþekktri svissneskri fyndni létu þeir þann brandara falla að Íslendingar væru nú kallaðir „ash-holes“.
Mér fannst fáir hlæja.
Á Íslandi héldu menn að ímynd Íslands væri í rúst (þeirri litlu sem „banksterar“ höfðu ekki eyðilagt).Ferðaþjónustan taldi að það kæmi ekki hræða til landsins og þjóðarátaki var hleypt af stað. Æ síðan hafa menn lifað í þeirri sjálfsblekkingu að „Inspired by Iceland“ hafi bjargað landinu.
Ég held að það sé bull.
Eldgosið bjargaði landinu.
Aldrei hefur Ísland fengið eins mikla umfjöllun í erlendum miðlum og með mögnuðum myndum af gosinu slæddust fagrar myndir af íslensku landslagi, mesta þjóðarauði Íslands.
Það vildu allir koma og sjá þetta hrikalega flotta land og auðvitað hjálpaði að bjórglasið kostaði ekki lengur 10 Evrur en fyrir þá fjárhæð má kaupa í matinn fyrir heila fjölskyldu víða í Evrópu.
Síðan hefur vöxtur í ferðaþjónustu orðið ævintýralegur og vaxið langt umfram spár greiningardeilda bankana (sem, merkilegt nokk, er farið að vitna til aftur eins og sannleiksorð Biblíunnar).
Þetta rifjast upp þegar hávær öskurkór fer á límingunum yfir táknrænni tillögu um að blanda mannréttindamálum við innkaupastefnu Reykjavíkurborgar. Nú á þvílík vá að vera fyrir dyrum að Móðuharðindin blikna í samanburði.
Við erum ótrúlega nösk við að búa til mæðuharðindi – sérstaklega þegar menn sjá pólitískan hag af að blása í glæðurnar. Ekki skemmir ef hægt er að sá þessu ofan í opið skítaplógfar rasisma, xenophobíu eða almennrar nesjamennsku.
Menn ættu að hafa í huga að út í hinum stóra heimi er fjölbreytt samfélag. Fyrir hvern einasta harðkjarna zíonista sem bregst við gagnrýni af jafnmiklu offorsi og Vísindakirkjan, eru þúsundir hugsandi manna sem fyrirlíta slátrun á börnum á Gaza og hafa megnustu skömm á ólöglegu hernámi og landnemabyggðum í Ísrael. Þeir ferðast líka.
Slakið á.