Kostuð kynning
Sængurnar frá Lín Design þekkja margir enda fyrirtækið orðið rótgróið. Frá árinu 2008 hefur Lín Design selt yfir 19.000 dúnsængur bæði fyrir börn og fullorðna inn á íslensk heimili. Lín Design er til húsa að Laugavegi 167 og reka þau einnig mjög öfluga netverslun.
Náttúruleg gæði dúnsins
Sængurnar frá LínDesign eru eingöngu fylltar með andardún og eru því vistvænar. Það sem skiptir mestu máli í vali á gæðadún er aldur dúnsins. Því lengur sem öndin dvelur við náttúrulegar aðstæður því þéttari verður dúnninn. Eldri dúnn gefur betri einangrun og því þarf minna magn í sængina. Áður en dúnninn fer í sængurnar er hann hreinsaður til að fjarlægja alla hugsanlega ofnæmisvalda.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Einbreiðar sængur, 140×200, eru fylltar með 790 grömmum af andadúni sem er heppilegt við íslenskar aðstæður. Sængurnar eru því léttar og þægilegar. Hitastigið á Íslandi er mun jafnara samanborið við mörg önnur lönd. Við á Íslandi erum því vön að nota sængur sem henta vel bæði á sumrin og veturna.
Sængurnar eru einnig fáanlegar í 140×220 sem er extra löng og tvöfaldar 200×220. Barnasængurnar koma í tveimur stærðum, 100×140 og 70×100. Einnig er til nokkrar stærðir af dúnmjúkum dúnkoddum.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
100% náttúruleg efni
Ytra byrðið á sængunum er saumað úr 270 þráða bómull sem tryggir mjúka viðkomu. Þegar sængin hefur verið þvegin í fyrsta sinn mýkist bómullin og þéttist. Til að forðast ryk og önnur óhreinindi, sem geta framkallað ofnæmi, er mikilvægt að sængin sé framleidd úr bestu fáanlegu bómull. Dúnsængurnar eru saumaðar í ferhyrninga til að koma í veg fyrir að dúnninn færist til innan í sænginni.
Ekkert fiður
Í sængunum frá Lín Design er ekkert fiður. Dúnninn einangrar mun betur en fiðrið. Dúnninn andar einnig og losar mun betur út raka en fiður. Fiður er oft notað sem fyllingarefni á móti dúninum enda mun ódýrara efni. Þar sem ekkert fiður er að finna í sængunum „stinga“ þær ekki og eru dásamlega mjúkar.
Dúnn í stað gerviefnis
Á markaðnum má finna úrval af sængum sem framleiddar eru úr gerviefnum. Munurinn á dúnsængum og gervisængum er að dúnninn er mun þéttari í sér og heldur betur hita en sængur úr gerviefnum. Dúnninn er einnig mun léttari og umhverfisvænni. Ólíkt gerviefnum er dúnninn gæddur þeim eiginleikum að geta dregið í sig og losað raka á áhrifaríkan hátt. Þetta verður til þess að dúnsængurnar halda upprunalegum eiginleika mun lengur en sængur úr gerfiefnum.
Umhirða
Gott er að viðra & hrista sængurnar utandyra. Sængurnar eru unnar úr 100% náttúrulegum efnum og „anda“ því mjög vel. Það er heppilegt að lofta vel um sængurnar í um klukkustund áður en þú setur rúmteppi yfir sængurnar. Með þessu nærð þú að losa um raka sem hefur safnast í sængurnar. Forðist að ryksuga sængina. Með góðri umhirðu endist sængin þín í langan tíma.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Ofnæmi – nei takk!
Samkvæmt rannsóknum háskólans í Kiel í Þýskalandi og læknadeildar Wellington háskólans í Nýja Sjálandi eru dúnsængur mun betri fyrir fólk sem þjást af astma eða ofnæmi. Rannsóknirnar sýndu að sængur úr gerviefnum eru mun líklegri til að innihalda ofnæmisvalda sem síðan valda astma eða ofnæmi. Þess má einnig geta að það er fjórum sinnum meira magn af rykmaurum í sængum úr gerviefnum heldur en í dúnsængum.
,,Sængur úr gerviefnum safna hraðar í sig ofnæmisvökvum frá rykmaurum en sængur sem gerðar eru úr dúni. Lengi var því trúað að rykmaurar tímguðust betur í sængum gerðum úr dúni en úr öðrum efnum. Því eru stundum auglýstar ofnæmisfríar sængur úr gerviefnum. Rannsóknir seinna ára benda til þess að þessu sé alveg öfugt farið og að rykmaurar tímgist verr í dúnsængum. Rannsóknir virðast kollvarpa þeirri trú að gerviefni séu betri í sængurfatnað þeirra eru eru með ofnæmi en dúnsængur og dúnkoddar“.*
* Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi
Image may be NSFW.
Clik here to view.