Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lítil áhugamanneskja um Louis Vuitton!

$
0
0

Erna Kristín Ottósdóttir býr í Danmörku ásamt sambýlismanni sínum, Ara Frey Skúlasyni, landsliðsmanni í fótbolta. Ari spilar þar með OB Odense og Erna stundar nám í sjúkraþjálfun og eltist við ærslabelgina þeirra tvo með þann þriðja í maganum. Hún segir eiginkonur fótboltamanna vera ósköp venjulegar konur, allavega þær sem hún þekkir, og fæstar þeirra ef nokkrar þjáist af merkjasýki.

Erna og Ari voru ekki búin að vera lengi saman þegar Erna ákvað að láta hjartað ráða og flytja til Svíþjóðar þar sem Ari spilaði með Sundsvall.

„Þetta var í janúar 2008. Eldri strákurinn okkar er svo fæddur í nóvember 2011 í Sundsvall, og sá yngri í júlí 2013. Í lok seinni meðgöngunnar voru samningaviðræður í gangi um að fara frá Sundsvall, og á settum degi fengum við að vita að tilboð hefðu verið samþykkt, og við værum að fara að flytja! Sem betur fer voru foreldrar mínir í heimsókn, og þau voru bara sett í pökkun á búslóðinni með mig að reyna að fókusera á að fæða krakkann áður en Ari þyrfti að mæta á æfingar með nýja liðinu, OB Odense í Danmörku,“ segir Erna glaðlega og lét ekki þétta dagskrá slá sig út af laginu enda með dyggan stuðning foreldra sinna.

Synirnir  Henry Leo og Gabriel Eli

Synirnir Henry Leo og Gabriel Eli

Þriðja barnið á leiðinni

„Ég endaði á að ganga 5 daga framyfir, og fæddi þann yngri á miðvikudegi. Á föstudeginum fór Ari til þess að spila síðasta leikinn sinn með Sundsvall, sem var útileikur í Gautaborg, og ég, foreldrar mínir og strákarnir hlömmuðum okkur svo upp í bíl á sunnudeginum og keyrðum tæpa 1.400 km á tveimur dögum, þá með 4 daga gamlan unga sem var enn blautur á bak við eyrun.“ Fjölskyldan hefur búið í Danmörku í rúm tvö ár og kann vel við sig. Í janúar er svo von á þriðja sólargeislanum, lítilli stelpu í strákaveldið.

Aðspurð hvort það sé ekki erfitt að búa erlendis með engar ömmur og afa og mann sem er mikið í burtu játar Erna því en er orðin vön því að vakna fimm eða sex – alla morgna!

„Að vera kona fótboltamanns þýðir það að maður er mikið einn með börnin þar sem þeir ferðast mikið. Bæði með félagsliðum og svo landsliðinu. Auðvitað er ekkert alltaf neitt grín að vera svona langt frá fjölskyldunni þegar maður er með börn, því það erum bara við og enginn annar til að leysa af. Við til dæmis getum ekki eftir langa viku beðið ömmu að taka í næturpössun svo við fáum að sofa aaaaðeins lengur eða til að sækja í leikskólann ef það er mikið að læra hjá mömmu svo hún þurfi ekki að sitja langt fram á nótt. Við erum reyndar með yndislega íslenska stelpu sem passar fyrir okkur öðru hvoru, ef okkur langar í bíó eða út að borða, og þeirra stunda njótum við þeim mun meira, og heimsóknir frá eða til ömmu og afa eru þeim mun meira metnar þegar þær eru.“

Dreki sem vaknar fimm á morgnana

En hvernig kemur Erna æfingu fyrir í þéttskipuðum deginum?

„Týpískur dagur hjá mér byrjar þannig að ég vakna milli 5.00–5.30 þegar ég tek mér powerwalk, eða einn hring í ræktinni! Strákarnir vakna svo um 6.30 og við borðum alltaf öll saman morgunmat til að byrja daginn vel. Skólinn tekur svo við, og er allan daginn, enda fullt nám. Ef dagsformið er ekki alveg í toppi kl. 5.00, þá fer ég í ræktina eftir skóla, eða eftir kvöldmat,“ segir orkubomban sem æfir fimm til sex daga vikunnar.

„Besti tími dagsins er svo tíminn sem ég á með börnunum, þar sem ég fer sem farþegi í alls konar ævintýraheima, bæði inni og úti. Suma daga er ég þrír bílar í bílaleiknum, aðra daga dreki sem borðar legokalla, og enn aðra markmaður í fótbolta. Kvöldin fara svo í lærdóm og gæðastundir með hinum helmingnum þar sem batteríin fá lokahleðslu dagsins.“

Henry Leo heitir eldri sonurinn  og Gabriel Eli sá yngri

Henry Leo heitir eldri sonurinn og Gabriel Eli sá yngri.

Ófáir súpa væntanlega hveljur og finnst enn vera nótt klukkan fimm. Erna segist vön því að sofa lítið og vakna snemma og það venjist eins og flest annað.

„Auðvitað koma dagar þar sem ég er algjörlega ekki í neinu stuði, hvorki fyrir ræktina né skólann, og þá daga læt ég alltaf æfingarnar víkja til þess að nota orkuna frekar í skólann og samveru með fjölskyldunni eftir skólann. Og það er ofsalega mikilvægt fyrir allar mömmur að muna að þó svo að ræktin detti út í viku er það alls alls ekki heimsendir! Það gerist alveg hjá mér, og ég dett alveg í nammipokann sumar helgar. Stundum þarf maður að leyfa líkamanum að núllstilla sig, og hvíla sig. Maður gerir sjálfum sér alls engan greiða með því að keyra sig út og það þarf ég alveg oft að minna sjálfa mig á.“

Þung lóð og þungarokk

„Sem barn var ég með frekar mikinn athyglisbrest þegar kom að íþróttum og entist aldrei sérlega lengi í neinni íþrótt og var alltaf að prófa eitthvað nýtt! Ég æfði meðal annars tennis, fimleika, sund og fótbolta, en fann mig aldrei almennilega í neinu fyrr en ég datt inn um dyrnar á líkamsræktarstöð í Sundsvall árið 2008.“

Erna segir þau hjónin ekki æfa mikið saman enda fái Ari meira en nóg í vinnunni. Henni sjálfri henntar best að æfa ein með fulla einbeitingu og útrásina í botni.

„Ég fer ein með þungarokkið og lyfti þungt og mikið. Þannig fæ ég allra mest út úr æfingunni og líður best á eftir.“

Í Svíþjóð vann Erna á líkamsræktarstöð en hún endaði alveg óvart á bak við móttökuborðið.

„Mér bauðst einn daginn að taka að mér vinnu í móttökunni hjá þeim. Áður en ég vissi af var ég svo komin með þjálfunarleyfi hjá Les Mills í Body Balance, og svo orðin einkaþjálfari í gegnum The Academy í Svíþjóð, og fann að ég var loksins búin að finna minn bransa. Ég þjálfaði Body Balance á báðum meðgöngum fram á 7. mánuð, eða alveg þangað til ég gat ómögulega staðið með höfuðið undir bumbuhæð án þess að fá svima.“

Í dag stundar Erna nám í sjúkraþjálfun og segist loks hafa fundið þessa margfrægu hillu sem allir eru að tala um.

Erna Kristín og Ari Freyr.

Erna Kristín og Ari Freyr.

Að koma sér í form eftir barnsburð

Erna var mjög snögg að koma sér í gott form eftir barnsburð og segir galdurinn vera að hætta ekki að hreyfa sig heldur aðlaga hreyfinguna að hverju tímabili í lífinu.

„Svo framarlega sem ekki er neitt að, og ljósmóðir eða læknir gefur grænt ljós, er ekkert nema hollt að stunda hreyfingu. Ég sjálf æfði alla fyrstu meðgönguna og tók síðustu æfingu innan við sólarhring áður en ég fæddi, og á annarri meðgöngu var ég aftur daglegur gestur í ræktinni fram að viku 36, þegar ég fór að fá mikla samdrætti. Eftir það fór ég daglega í gönguferðir alveg fram að fæðingu. Hreyfing á meðgöngunni hefur rosalega mikið að segja um hversu fljótur maður er að jafna sig eftir fæðingu, og hversu fljótur maður er að komast af stað aftur.“

Hún segist þó vilja benda á að hreyfing á meðgöngu er ekki til þess að toppa sjálfan sig, eða ná einhverjum geggjuðum markmiðum, heldur eingöngu til þess að viðhalda líkamlegri velllíðan. Hlustið á líkamann, og aðlagið æfingarnar eftir því hvernig þið hafið það.

„Eftir meðgöngurnar mínar fór ég mjög fljótt að gera grindarbotnsæfingar, og æfingar til þess að fá aftur tilfinningu fyrir magavöðvunum. Svona æfingar er mjög mikilvægt að byrja á til þess að hjálpa líkamanum að jafna sig, og alls ekki stökkva strax í magaæfingar og planka.“

Hægt og rólega fór Erna svo að gera meira krefjandi æfingar og ítrekar að göngutúrar með barnavagninn geri meira en margan grunar.

„Að koma sér í form eftir meðgöngu er maraþon en ekki spretthlaup, alveg eins og meðgangan sjálf, og að mínu mati er allra mikilvægast að finna hjá sjálfri sér hvað maður er tilbúinn í og ekki gleyma sér í formkapphlaupinu og gleyma að njóta þessa dásamlega tíma sem fyrsta ár barnsins er.“

Aðspurð um þann þráláta „merkjafíkla“-stimpil sem margar eiginkonur fótboltamanna hafa fengið hlær hún upphátt.

„Það er eitthvað sem ég sjálf þekki alls ekki, enda mjög lítil áhugamanneskja um Louis Vuitton eða Christian Louboutin! Þær eiginkonur sem ég hef kynnst eru flest allar ofsalega venjulegar og yndislegar stelpur. Auðvitað eru einhverjar sem hafa brennandi áhuga á tísku og merkjum, en ég sjálf hef ofsa lítið orðið vör við svoleiðis í kringum mig,“ segir þessi þrælduglega flotta mamma spennt fyrir komandi tíð, börnum, námi og landsleikjum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283