Margarethe von Trotta er heiðursgestur RIFF í ár og mun taka á móti heiðurverðlaunum hátíðarinnar fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar. Færasti kvikmyndaklippari landsins, Elísabet Ronaldsdóttir, ræðir við von Trotta um verk hennar, vinnuaðferðir og persónusköpun í Norræna húsinu á milli 15:00-17:00 þann 29. september.
Von Trotta er brautryðjandi í kvikmyndaleikstjórn sem ein af frumkvöðlunum sem stóðu að New German Cinema á 7. og 8. áratugnum. Von Trotta hefur í gegnum sinn feril skrásett sögu kvenna í Þýskalandi, bæði með heimildamyndum sem og leiknum myndum. Von Trotta hefur skapað djúpar og fjölskrúðugar kvenpersónur og með þeim auðgað framsetningu kvenna í kvikmyndum. Von Trotta hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum fyrir myndir sínar um allan heim.
Meðal helstu kvikmynda von Trotta eru The Misplaced World (2015), Hannah Arendt (2012), Rosenstrasse (2003), Rosa Luxemburg (1986) og Marianne & Juliane (1981).
Viðburðurinn fer fram á ensku
Aðgangur ókeypis