Kvennablaðið náði tali af Sigrúnu Magnúsdóttur umhverfisráðherra fyrr í dag og spurði frétta af vinnu ráðuneytisins vegn svika Volkswagen verksmiðjanna. Ráðherra sagði enga markvissa vinnu vera komna í gang innanhúss í ráðuneyti sínu vegna málsins. Ekki væri vitað í ráðuneytinu enn sem komið er hversu margar bifreiðar væru í umferð á Íslandi búnar dísilvélinni sem um ræðir. Aðspurð hvort losun gróðurhúsalofttegunda hefði áhrif á tollaflokkun bifreiða kvaðst hún ekki hafa hugmynd um það.
Vörugjöld af bifreiðum hækka verulega með aukinni losun CO2.
Ráðherra hvatti til þolinmæði og minnti jafnframt á miklar framfarir sem orðið hefðu í minnkun mengunar frá fiskiskipaflotanum. Hún kvaðst fagna aukinni umhverfisvitund aðila atvinnulífsins, sem veiti einmitt umhverfisverðlaun sín í dag.