Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

SÚKKULAÐI-MORGUNVERÐARPÖNNSUR!

$
0
0

„Hversu vel heldurðu að þú myndir sofa ef þú vissir að þú værir að fara að fá súkkulaði-pönnukökur í morgunverð? Freeeekar vel myndi ég halda,“ sagði Gunnar Kamban þjálfari þegar ég bað hann að deila með lesendum Kvennablaðsins einni af sínum margrómuðu sykurlausu súkkulaði-uppskriftum.

HRÁEFNI:

2 egg

450 g möndlumjöl

1 msk. erythritol sætuefni

1 tsk. vanilludropar

200 ml möndlumjólk

2 msk. kakó

1 tsk. kanill

1 tsk. lyftiduft

klípa salt

AÐFERÐ:

1. Hrærðu saman öll innihaldsefnin í hrærivél eða með handþeytara.

2. Settu smá smjör eða kókosolíu á pönnukökupönnu og steiktu pönnsurnar í um 40

sekúndur á hvorri hlið. Berðu fram með þessari ofureinföldu súkkulaðisósu sem inniheldur

nákvæmlega engan sykur.

EINFÖLD SÚKKULAÐISÓSA:

3 msk. kókosolía

1 msk. smjör

2 msk. kakó

2 msk. hnetu eða möndlusmjör

Sætuefni að eigin vali, farðu bara sparlega með það.

Settu öll hráefnin í skál og inn í örbylgju í 20–30 sek. Hrærðu vel saman og njóttu með pönnsunum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283