Kvennablaðið langar að benda lesendum á úrvals veisluþjónustu að nafni Matur ehf. Höfuð og herðar fyrirtækisins er Sigvaldi Jóhannesson, kokkur og veiðimaður með meiru. Hráefni er sérvalið og að mestu leyti veitt af Sigvalda sjálfum.
Matur ehf. býður meðal annars upp á villibráð, reyktan svartfugl, grafinn lax, gæsalifrarpatè, hreindýrapatè, hreindýrabollur og svo mætti lengi telja. Þeir sjá um allar gerðir af veislum; fermingar, brúðkaup, erfidrykkjur, árshátíðir og þorrablót. Skoða má myndir inni á Facebook-síðunni HÉR eða hafa samband við Sigvalda í síma 691-5976 eða á netfanginu matur@tskoli.is. Hann hefur einnig til umráða tvo veislusali Fáks í Víðidal en myndir af þeim má skoða HÉR.
Kvennablaðið mælir sérstaklega með þjónustu fyrirtækisins en á dögunum fengum við að njóta gómsætrar villibráðar sem var sérstaklega ljúffeng og fallega framborin. Hvers vegna ekki að panta veisluna heim og njóta þess að vera til á meðan? Jumm jumm!