Femínistinn Germaine Greer átti að halda fyrirlestur í háskólanum í Cardiff í Wales þann 18. nóvember en ekkert verður af því að því er virðist. Greer, sem er hvað frægust fyrir bók sína The Female Eunuch, ætlaði að halda tölu um konur og völd og hvað læra mætti af 20. öldinni. Nemendur í skólanum hafa brugðist ókvæða við og hafa lagt mikið á sig til að stöðva heimsókn hennar í skólann. Ástæðan er sú að nemendur segja að Germaine sé Transphobic eða hafi gríðarlega fordóma gagnvart transfólki.
Germaine er á áttræðisaldri en hvergi nærri hætt að koma á óvart. Vegna harðra viðbragða háskólanema kom hún fram nýlega í viðtali við BBC og ræddi þá skoðun sína að það eitt að karlmenn fari í gegnum kynleiðréttingarferli geri þá ekki að konum. Hún hefur verið ásökuð fyrir að hvetja til ofbeldis gagnvart transfólki en segir það tóma vitleysu. Hún hafi ekkert á móti því að leyfa körlum að fara í kynskiptaaðgerðir en það breyti þeim einfaldlega ekki í konur. Viðtalið má sjá hér.