Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Um ungar konur í pólitík

Nýliðin helgi hefur verið sælgæti fyrir áhugafólk um pólitík með landsfund Sjálfstæðisflokksins í Laugardalnum og landsfund Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á Selfossi.

Það sem þótti verulega fréttnæmt úr Laugardalnum þessa helgina var kjör ungrar konu til ritara í Sjálfstæðisflokknum. Í kjölfarið birtist þessi frétt sem vekur athygli á framgangi ungra kvenna þetta árið í pólitík.

Illa unnin frétt, verður að segjast, því aðeins hálf sagan er sögð.

Að sjálfsögðu er það frábært að ungar konur séu að hafa sig meira í frammi í fjórflokknum svokallaða og þá jafnvel sérstaklega á hinum gulli slegna hægri væng.

Píratar hafa hins vegar frá uppphafi verið mjög meðvitaðir um mikilvægi þess að allir taki þátt í innra starfi flokksins og höfum við reynt að haga starfinu þannig að allir komist að. Til dæmis höfum við talið það sérstaklega mikilvægt að vera með aðgengilegt húsnæði fyrir alla og einnig er það mjög mikilvægt að öllum okkar fundum er streymt frítt á netinu.

Innan Pírata eru ótrúlega öflugar konur sem eru sterkar og ákveðnar. Konur sem eru í forystu. Í lok ágúst var kona kjörin formaður framkvæmdaráðs Pírata en auk hennar sitja þrjár aðrar konur sem aðalmenn í framkvæmdaráði, af sjö aðalmönnum. Ungir Píratar voru næstir með sinn aðalfund í lok september og voru þar kjörnar inn þrjár ungar konur í stjórn félagsins, af fimm meðlimum. Að lokum var snemma í október kjörin ný stjórn Pírata í Reykjavík þar sem ég sjálf var kjörin formaður félagsins og auk mín eru tvær aðrar konur aðalmenn í stjórninni.

Ég vil fá að taka þetta saman fyrir ykkur; Tíu konur í aðalsæti ráðs og stjórna innan Pírata, af sautján sætum. Þar af tveir formenn. Þetta er fyrir utan allar frábæru konurnar í varasætum. Og hér eru einungis þær kosningar sem hafa átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu og á þessum haustmánuðum.

Í ljósi þess fréttaflutnings sem hefur verið eftir frábær kjör fjórflokkanna á konum í ábyrgðarstöður innan sinna raða, fannst mér ekkert annað en nauðsynlegt að benda á þessar staðreyndir sem við Pírötur erum.

Góðar stundir.

Katla Hólm, formaður Pírata í Reykjavík


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283