Töluverður fjöldi fólks safnaðist saman við lögreglustöðina í Reykjavík í dag vegna þeirra frétta að ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir tveimur mönnum sem búið er að kæra vegna nauðgana. Mótmælt var aðgerðarleysi lögreglunnar í kynferðisafbrotamálum. Twitter logaði líka seinnipartinn undir myllumerkinu #almannahagsmunir:
#almannahagsmunir pic.twitter.com/O40ZqJM381
— Drífa Pálín Geirs (@DrifaP) November 9, 2015
Steinunn Ólína Hafliðadóttir var við lögreglustöðina og sendi okkur þessar ljósmyndir.
ólétt kona, þroskaskertur fíkniefnainnflytjandi og geðklofa morðingi sitja öll í gæsluvarðhaldi. En ekki nauðgarar #almannahagsmunir
— Þóra Tómasdóttir (@thoratomas) November 9, 2015
Bara ef það hefði fundist jóna eða smá kókain mylsna við húsleitina þá væru þessir meintu nauðgarar í gæsluvarðhaldi! #almannahagsmunir
— Hafþór Helgason (@haffihelga) November 9, 2015
My daughter’s rapist fled Iceland 2x before he was jailed. Not much has changed here in #Iceland https://t.co/0xIFVpQzIZ #almannahagsmunir
— Gisli Olafsson (@gislio) November 9, 2015