Fyrir 2.400 árum skrifaði gríska leikskáldið Evripídes leikrit um flóttakonur sem á ískyggilega mikið erindi við samtímann. Sunnudaginn 29. nóvember verður fluttur gjörningur í Hörpu byggður á þessum forna harmleik til styrktar flóttafólki dagsins í dag.
„Flóttakonurnar“ munu koma siglandi frá Suðurbugt á sjófarinu Undínu og leggja að bryggju við Ingólfsgarð fyrir neðan Hörpu.

Ljósm. Kristján Ingi
Hópurinn gengur í fylgd fána- og kyndilbera inn í Hörpu og flytja þar í stiganum í anddyrinu brot úr Trójudætrum Evripídesar, sem fjallar um eiginkonur, dætur og mæður á flótta eftir að heimaborg þeirra Trója, hefur verið lögð í rúst í hernaðarátökum.
Skáldið lýsir nístandi harmi og sálarangist kvennanna eftir að hafa misst allt, ástvini sína og föðurland.
Leikritið er samið árið 415 f. Kr. og sú sorglega staðreynd blasir við að nú 2.400 árum síðar er ástandið í heiminum síst betra.
Hvunndagsleikhúsið setti Trójudætur á svið í Iðnó árið 1995, fyrir tuttugu árum, í leikstjórn Ingu Bjarnason við frumsamda tónlist Leifs Þórarinssonar. Í aðalhlutverkum voru þær Bríet Héðinsdóttir, sem lék Hekúbu drottningu, og Helga E. Jónsdóttir, sem lék Andrómökku.

Ljósm. Kristján Ingi
Leifur Þórarinsson og Bríet Héðinsdóttir hefðu átt áttræðisafmæli nýlega, Leifur 13. ágúst 2014 og Bríet 15. október 2015. Minning þessara stórkostlegu listamanna er heiðruð með þessum hætti. Sömuleiðis verður Helga, sem stendur fyrir uppákomunni, sjötug 28. desember nk. En ekki síst er ætlunin að sýna samúð og samstöðu með öllum þeim sem neyðast til að flýja heimkynni sín vegna stríðsátaka, leggja út á opið haf í óvissu og lífshættu.

Ljósm. Kristján Ingi
Það eru leikkonurnar Helga E. Jónsdóttir, Lilja Þórisdóttir, Bryndís Petra Bragadóttir, Guðrún Þórðardóttir, Kolbrún Erna Pétursdóttir, sem allar léku í sýningunni í Iðnó 1995, ásamt leikkonunum Önnu Kristínu Arngrímsdóttur, Esther Talíu Casey og Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, sem túlka stutt brot úr leikriti Evrípídesar. Þá flytja þrjár söngkonur tónlist Leifs Þórarinssonar sem hann samdi við leiksýninguna 1995, þær Björk Jónsdóttir, Signý Sæmundsdóttir og Jóhanna Þórhallsdóttir, sem stjórnaði söngnum í Iðnó forðum og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir, Stína bongó, leikur undir á trommu. Lára Stefánsdóttir sér um „kóreógrafíu“ nú eins og í sýningunni 1995 og Helga Björnsson hefur umsjón með búningunum.

Ljósm. Kristján Ingi
Listamennirnir gefa allir sína vinnu en Rauði krossinn tekur á móti söfnunarfé í anddyri Hörpu og skora aðstandendur þessa viðburðar á sem flesta að mæta og sýna samhug í verki.
Gjörningurinn verður fluttur sunnudaginn 29. nóvember kl. 15.30